„Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2026 11:17 Jóhannes Karl Guðjónsson er á sínu fyrsta tímabili með FH. vísir/guðmundur FH er aðeins með eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deild karla. Albert Brynjar Ingason áttar sig ekki á hvaða vegferð FH-ingar eru.
FH tapaði 3-0 fyrir Val á fimmtudaginn. Þetta var annað tap FH-inga í Bestu deildinni í röð en þeir eru eitt fjögurra liða sem eru einungis með eitt stig. „Það er mikið búið að tala um FH, og við bjuggumst við því, að það yrði ákveðin ákefð í þeirra leik, þeir myndu vinna boltann hátt uppi og þetta væri ungt lið með mikla hlaupagetu en mér fannst þeir rosalega flatir í þau skipti sem þeir reyndu að pressa Valsmenn,“ sagði Albert í Stúkunni í fyrradag. Klippa: Stúkan - umræða um FH „Ég er ekki að fatta hvert uppleggið er hjá FH-ingum. Ég er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað.“ Halldór Árnason hvetur FH-inga til að halda sig við sína leið og reyna að vera betri í því sem þeir ætla að gera. Hálft í hálft er aldrei gott „Það er kannski áhyggjuefni að í síðasta leik í Garðabæ mætir FH og reynir að pressa Stjörnuna. Þeir fara í gegnum hjartað, spila með jörðinni í gegnum FH-liðið. Núna spilar Valur út og svo yfir pressuna og það virkaði líka,“ sagði Halldór. „Ég myndi vilja sjá FH í 4-4-2, í aggresívri pressu og vera betri í því. Ég ber virðingu fyrir því að þeir gáfu út hvað þeir ætluðu að gera. En mér fannst þeir vera hálft í hálft núna sem er aldrei gott.“ FH-ingar einir staðið við sitt Halldór vonar að Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, sé ekki farinn að hafa áhyggjur af stöðu mála. „Það voru nokkur lið sem voru með yfirlýsingar að þau ætluðu að gera hlutina svona og hinsegin fyrir tímabilið. FH er eina liðið sem hefur staðið við það og gert það alla leið. Þeir vilja pressu, fóru í pressu til að byrja með í leikjunum og eru með ungt lið, eitt yngsta lið sem við höfum séð í efstu deild lengi,“ sagði Halldór. „Eina leiðin til að verða betri í þessu, sem er nýtt fyrir þeim og þetta eru ungir strákar, er að þora. Það gæti orðið þungt. Ég vona að stuðningurinn sé endalaus í Hafnarfirði því það var gefið út að svona ætluðu þeir að gera hlutina. Þannig að fariði, pressiði, veriði aggresívir, spilið á ungum mönnum og það mun skila sér að lokum.“ Næsti leikur FH er gegn toppliði KR á útivelli á mánudaginn kemur. Umræðuna úr Stúkunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla FH Stúkan Tengdar fréttir „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Albert Brynjar Ingason segir Óla Val Ómarsson skulda Breiðabliki betri frammistöðu í Bestu deild karla. Hann fer hörðum orðum um sóknarleik Blikanna. 24. apríl 2026 23:15 „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ „Ef að þeir spila svona í sumar þá fara þeir beint niður,“ sagði Albert Brynjar Ingason ómyrkur í máli þegar hann ræddi um Eyjamenn, í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, eftir 6-2 tap ÍBV gegn KR í Bestu deild karla. Hann segir einn mann ómissandi hjá ÍBV. 24. apríl 2026 14:46 Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Þjálfarar í Bestu deildinni gætu þurft að passa sig betur en ella á hvað þeir öskra á nýjum heimavelli Þórs, eins og heyra mátti í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld. 24. apríl 2026 09:32 „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Valur rassskellti FH með þremur mörkum í fyrri hálfleik í þriðju umferð Bestu deild karla í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson var með tvær stoðsendingar en var samt sem áður svekktur með framlag sitt í leiknum. 23. apríl 2026 22:26 „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ FH tapaði 3-0 gegn Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðið fékk öll þrjú mörkin á sig í fyrri hálfleik eftir afar dapra frammistöðu. 23. apríl 2026 22:13 Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Valur tyllti sér í þriðja sæti Bestu deildar karla með því að vinna öruggan sigur á FH, 3:0, í þriðju umferð deildarinnar á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik og er Valur nú með sex stig. FH er í 11. og næstneðsta sæti með aðeins eitt stig. 23. apríl 2026 18:32 Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Dramatískur markaleikur á Brúnni Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Sjá meira
„Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Albert Brynjar Ingason segir Óla Val Ómarsson skulda Breiðabliki betri frammistöðu í Bestu deild karla. Hann fer hörðum orðum um sóknarleik Blikanna. 24. apríl 2026 23:15
„Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ „Ef að þeir spila svona í sumar þá fara þeir beint niður,“ sagði Albert Brynjar Ingason ómyrkur í máli þegar hann ræddi um Eyjamenn, í Stúkunni á Sýn Sport Ísland, eftir 6-2 tap ÍBV gegn KR í Bestu deild karla. Hann segir einn mann ómissandi hjá ÍBV. 24. apríl 2026 14:46
Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Þjálfarar í Bestu deildinni gætu þurft að passa sig betur en ella á hvað þeir öskra á nýjum heimavelli Þórs, eins og heyra mátti í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gærkvöld. 24. apríl 2026 09:32
„Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Valur rassskellti FH með þremur mörkum í fyrri hálfleik í þriðju umferð Bestu deild karla í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson var með tvær stoðsendingar en var samt sem áður svekktur með framlag sitt í leiknum. 23. apríl 2026 22:26
„Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ FH tapaði 3-0 gegn Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðið fékk öll þrjú mörkin á sig í fyrri hálfleik eftir afar dapra frammistöðu. 23. apríl 2026 22:13
Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Valur tyllti sér í þriðja sæti Bestu deildar karla með því að vinna öruggan sigur á FH, 3:0, í þriðju umferð deildarinnar á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik og er Valur nú með sex stig. FH er í 11. og næstneðsta sæti með aðeins eitt stig. 23. apríl 2026 18:32
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn