Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2026 10:30 LeBron James skýtur yfir Alperen Sengün í þriðja leik Houston Rockets og Los Angeles Lakers. LeBron kom leiknum í framlengingu með því að setja niður þriggja stiga skot á ögurstundu. getty/Kenneth Richmond Útlitið var ekki bjart hjá Los Angeles Lakers þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum gegn Houston Rockets í átta liða úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. En tveir reyndustu leikmenn Lakers komu liðinu í framlengingu þar sem það tryggði sér svo sigur og komst 3-0 yfir í einvíginu.
Houston var sex stigum yfir, 101-95, og með boltann þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Þá stal Marcus Smart boltanum og síðan var brotið á honum í þriggja stiga skoti. Hann setti öll vítin ofan í og minnkaði muninn í þrjú stig, 101-98. Í næstu sókn Houston stal LeBron James boltanum og setti í kjölfarið niður þriggja stiga skot og jafnaði, 101-101. Skot Alperens Sengün, miðherja Houston, geigaði svo og Lakers fékk tækifæri til að tryggja sér sigurinn. Þriggja skot LeBrons geigaði hins vegar og því þurfti að framlengja. LEBRON JAMES TIES THE GAME AT 101 🤯13.1 SECONDS TO GO ON PRIME. pic.twitter.com/V5LqcXlt7I— NBA (@NBA) April 25, 2026 Lakers reyndist sterkari aðilinn í framlengingunni, vann hana, 11-7, og leikinn, 108-112. Liðið vantar nú aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Hinn 41 árs LeBron hefur farið mikinn eftir að Luka Doncic og Austin Reaves meiddust og borið þyngstu byrðarnar í sóknarleik Lakers. Í nótt skoraði LeBron 29 stig, tók þrettán fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum. Smart skoraði 21 stig, þar af átta í framlengingunni. Rui Hachimura var með 22 stig og hitti úr átta af fjórtán skotum sínum. LEBRON PUT ON A SHOW IN H-TOWN TONIGHT. 👑 29 PTS 👑 13 REB 👑 6 AST👑 3 STL 👑 4 3PM (1 which forced OT) @Lakers take a commanding 3-0 series lead! Game 4: Sunday, 9:30pm/et, NBC and Peacock pic.twitter.com/cjfOcL89lu— NBA (@NBA) April 25, 2026 Sengün skoraði 33 stig, tók sextán fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum fyrir Houston sem lék án Kevins Durant í nótt. Varamenn Houston skoruðu aðeins þrjú stig í leiknum á meðan varamenn Lakers skiluðu 24 stigum. San Antonio Spurs náði forystunni í einvíginu gegn Portland Trail Blazers í Vesturdeildinni með 108-112 sigri í nótt. Victor Wembanyama lék ekki með San Antonio en það kom ekki að sök. Stephon Castle skoraði 33 stig og nýliðinn Dylan Harper 27 stig auk þess að taka tíu fráköst. Jrue Holiday skoraði 29 stig fyrir Portland. STEPH CASTLE: THREE-LEVEL SCORER.33 PTS I 5 AST I 3 3PM I SAS G3 WHe becomes the youngest player in Spurs franchise history to record 30+ PTS in a postseason game (21y, 174d)!Spurs take a 2-1 series lead in Round 1 of the NBA Playoffs presented by @Google! pic.twitter.com/egRQuJd4k2— NBA (@NBA) April 25, 2026 Þá sigraði Boston Celtics Philadelphia 76ers á útivelli í Austurdeildinni, 100-108. Jaylen Brown og Jayson Tatum skoruðu 25 stig hvor fyrir Celtics sem er 2-1 yfir í einvíginu. Tyrese Maxey skoraði 31 stig fyrir Sixers. Celtics/76ers Game 3 was a FANTASTIC FINISH.🍿 Tatum puts BOS up 4, 1:57 left🍿 Pritchard extends BOS' lead to 5, 1:17 left🍿 Tatum seals the deal with 25.3 left@celtics take a 2-1 series lead on the road! pic.twitter.com/UGRgE529Mx— NBA (@NBA) April 25, 2026
NBA Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira