ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Valur Páll Eiríksson skrifar 22. apríl 2026 20:55 Skagamenn gátu aðeins fagnað einu marki í kvöld, sem er í raun með ólíkindum. Vísir/Guðmundur Það er með hreinum ólíkindum að KA fari heim með stig í farteskinu eftir 1-1 jafntefli við ÍA í Akraneshöllinni í þriðju umferð Bestu deildar karla. Skagamenn nýttu færi sín hreint agalega og var refsað fyrir það. Mikil eftirvænting var á Akranesi fyrir fyrsta heimaleik ÍA-liðs sem ætlað eru mikil afrek í sumar. Skagamenn voru óverðskuldað með eitt stig fyrir leik dagsins við KA-menn sem voru einnig fúlir yfir dræmri uppskeru í upphafi móts. Norðanmenn mættu stigalausir til leiks eftir töp fyrir Stjörnunni og Víkingi í byrjun móts. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, sagði í viðtali fyrir leik að byggist við frábrugðnu verkefni í dag, að KA-menn gætu haldið betur í boltann og sótt meira en í fyrstu tveimur leikjunum. Ef til vill voru þeir meira með boltann en verið hafði í fyrstu tveimur leikjunum. En þeir gerðu ekkert svakalega mikið með hann. Skagamenn voru töluvert beittari og uppskáru mark frá Markúsi Páli Ellertssyni eftir rúmlega hálftíma leik. Það kom eftir misheppnað innkast KA á miðjum velli. ÍA vann boltann, geystist af stað og Gísli Eyjólfsson fann Markús sem afgreiddi vel. Flott skyndisókn heimamanna en agalegt mark fyrir gestina að fá á sig. Alltof einfalt. ÍA leiddi 1-0 í hálfleik en sá munur hefði átt að vera stærri. Áfram óðu Skagamenn í færum eftir hlé og oftar en einu sinni þurfti Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, í marki KA að taka á honum stóra sínum. KA náði einhverjum rispum en allt leit út fyrir að Skaginn myndi vinna þægilegan sigur, enda yfirspilandi Norðanmenn stærstan part. KA sótti í sig veðrið eftir þrefalda skiptingu um miðjan síðari hálfleik og sóknarleikurinn varð beittari með ferskum mönnum á við Diego Montiel og Oliver Heiðarsson. Þegar tuttugu mínútur voru eftir jafnaði varamaðurinn Montiel með hnitmiðuðu skoti eftir fyrirgjöf Valdimars Sævarssonar frá hægri. Skömmu fyrr höfðu Skagamenn vannýtt þrjú dauðafæri í sömu sókninni. Það verður ekki tekið af Montiel að afgreiðslan var glæsileg. En á meðan KA-menn fögnuðu sat öll stúkan í áfalli yfir því að staðan væri jöfn. Bæði lið sóttust eftir sigurmarki síðasta korterið en færin létu á sér standa. Leiknum lauk 1-1 og þriðja leikinn í röð sitja Skagamenn eftir án sigurs í leik sem þeir hefðu átt að vinna. Uppskera beggja liða er dræm í upphafi móts. KA er með eitt stig en ÍA tvö eftir þrjá leiki. Atvik leiksins Steinþór Már Auðunsson, markvörður KA, varði í tvígang frá Gísla Laxdal Unnarssyni sem slapp í gegn á 67. mínútu. Eftir seinni vörsluna barst boltinn til Viktors Jónssonar sem skaut yfir gegn nánast auðu marki. Þremur mínútum síðar jafnaði KA. Þar var vendipunktur. Færi ÍA voru nánast óteljandi fyrir það þrefalda klúður. Stjörnur og skúrkar Margar öflugar frammistöður en Steinþór Már Auðunsson er stjarna leiksins fyrir vörslur sínar úr dauðafærum. Hann bjargaði stigi fyrir KA. Margir sem spiluðu vel í Skagaliðinu sem var gaman að horfa á í kvöld. Sundurspiluðu KA á köflum. Last á framherja ÍA. Nánast allir með tölu fengu gott færi, eða tvö, sem fóru í súginn. Dómararnir Helgi Mikael Jónasson og hans teymi lét leikinn fljóta vel og engir vafadómar. Flott! Stemningin og umgjörð Sérkennilegt að vera hér innanhúss og fimm sinnum kom það fyrir að boltanum var sparkað upp í loft, eða öllu heldur upp undir þakið, og til þurfti dómarakast. Rúmlega 700 manns létu sjá sig, sem verður að teljast býsna gott. Stemningin með ágætum. Besta deild karla ÍA KA Íslenski boltinn