„Gríðarlega stolt af þessu afreki og gaman að eiga þetta á ferilskránni“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 18. apríl 2026 19:51 Glódís Perla Viggósdóttir sló leikjamet Íslands í dag. Anton Brink/Vísir Íslenska kvennalandsliðið tapaði naumlega fyrir Evrópumeisturum Englands 0-1 á Laugardalsvelli í dag. Glódís Perla Viggósdóttir spilaði sinn 146. landsleik fyrir Ísland í dag og er nú leikjahæst. „
Fyrirfram bjóst ég ekki við að ganga út af vellinum og vera svekkt að hafa ekki unnið“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Íslands eftir leikinn í dag. „Mér fannst við bara eiga virkilega góðan seinni hálfleik og mér fannst fyrri hálfleikurinn að mörgu leyti góður líka, við vörðumst vel og þær fengu ekki mikið af færum“ „Ég er eiginlega bara svekkt að við höfum ekki skorað einhver mörk í seinni hálfleik“ Það var mikill munur á hálfleikum hjá Íslenska liðinu í dag en þær mættu mun grimmari til leiks þann síðari. „Við töluðum aðallega um að kannski hætta að reyna of flækja hlutina og þegar við vinnum boltann að koma honum bara upp í hornin og fá hlaup á bakvið og reyna fá þá innköst, horn og við fáum bara ofboðslega mikið sjálfstraust með því“ „Þannig byrjum við seinni hálfleikinn og það bara byggir ofan á sig og bara gríðarlega ánægð með það hvernig við nýttum okkur orkuna“ Íslenska liðið fékk hörku færi í seinni hálfleiknum en boltinn vildi bara ekki fara inn. „Gríðarlega svekkjandi, við sköpuðum okkur nóg til þess að vinna England í dag og það er pínu leiðinlegt“ Það mátti minnstu muna að Íslenska liðið hefði náð í úrslit í dag en hvar lá helsti munurinn á milli liðana? „Kannski svolítið öðruvísi fótbolti. Við kannski erum meira að skapa úr föstum leikatriðum og skyndisóknum og þær eru kannski að spila meira og í fyrri hálfleik ná þær aðeins að pinna okkur niður og við komumst ekki alveg út úr lág blokkinni okkar“ „Ég er bara gríðarlega stolt af stelpunum okkar og hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn og hvernig við tökum yfir leikinn“ Það var vel mætt í stúkunni í dag en rúmlega fjögur þúsund voru mætt á Laugardalsvöll í dag. „Virkilega gaman og þýddi ótrúlega mikið fyrir mig. Þetta var stór leikur fyrir mig þannig það var ótrúlega gaman að það voru svona margir sem komu og vildu vera partur af deginum og auðvitað gefur þetta okkur ótrúlega mikla orku“ Glódís Perla Viggósdóttir spilaði sinn 146. landsleik í dag og varð um leið sú leikjahæsta frá upphafi fyrir A-landslið Íslands. „Gríðarlega stolt fyrst og fremst. Þetta er alveg galin tala þegar maður pælir í því og þegar maður fer aðeins að leiða hugann að því hversu lengi ég er búin að vera hérna og hvað er búið að gerast“ „Þetta er svo skrítið á sama tíma því mér finnst ég eiga svo mikið eftir en ég er bara gríðarlega stolt af þessu afreki og gaman að eiga þetta á ferilskránni“ Glódís Perla er náttúrulega á besta aldri svo hún mun bara bæta í metið. „Já vonandi þá tikka fleiri í kassann“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir stolt.
Landslið kvenna í fótbolta Fótbolti Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Sjá meira