Goðsögnin Mike Ditka fallin frá Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. október 2026 16:16 Mike Ditka er hér borinn af velli eftir sigurinn stóra í Super Bowl tímabilið 1985. vísir/getty Einn dáðasti sonur Chicago Bears, Mike Ditka, féll frá í dag 86 ára að aldri.
Hann skilur eftir sig risaspor í NFL-sögunni og ekki síst hjá Chicago Bears þar sem hann var leikmaður frá 1961 til 1966 og síðan sem þjálfari frá 1982 til 1992. Bears valdi Ditka númer fimm í nýliðavalinu árið 1961. Hann lét strax til sín taka og umbreytti stöðu innherja (Tight End) sem fram að Ditka höfðu aðallega verið í því að blokkera. Ditka sýndi að hægt var að nýta innherja til þess að grípa boltann líka. Fyrir vikið var hann valinn sóknarnýliði ársins. Mike Ditka (#89) er hér í leik með Bears árið 1963.vísir/getty Svo stór spor markaði Ditka í innherjastöðuna að hann varð fyrsti innherjinn sem komst í Heiðurshöll (Hall of Fame) deildarinnar árið 1988. Árið 1963 var hann í lykilhlutverki hjá Bears sem varð NFL-meistari. Er skórnir fóru á hilluna lá beinast við að fara í þjálfun. Hinn goðsagnakenndi þjálfari Dallas Cowboys, Tom Landry, réð hann sem aðstoðarþjálfara og þar var Ditka í níu ár. Cowboys vann Super Bowl árið 1977 með Ditka innanborðs. Taugar Ditka lágu þó alltaf í Chicago. Þangað langaði hann að fara aftur og hann sendi eiganda félagsins, George Halas, bréf þar sem hann lýsti yfir áhuga sínum á að þjálfa félagið. Halas tók hann á orðinu árið 1982 og réð hann sem þjálfara Bears. Ditka lofaði leikmönnum því að ef þeir dönsuðu með honum í einu og öllu þá kæmist liðið í Super Bowl að þremur árum liðnum. Ditka ásamt hinum óstýriláta leikstjórnanda Bears árið 1985, Jim McMahon.vísir/getty Liðið komst í undanúrslit á þriðja árinu en fór alla leið í úrslit leiktíðina 1985. Þar völtuðu Birnirnir yfir New England Patriots, 46-10, sem var langstærsti sigur í sögu Super Bowl. Ditka var valinn þjálfari ársins. Vörn Bears, með menn eins og ísskápinn William Perry, þykir ein sú besta í sögunni og 85-lið Bears er almennt talið eitt besta lið NFL-sögunnar. Spéfuglinn og rokkarinn Jim McMahon var leikstjórnandi liðsins og þrátt fyrir að vera óstýrilátur þá gekk samstarf hans og Ditka einhvern veginn upp lengstum. One of the most legendary rants ever.Rest in peace, Mike Ditka 🕊️ pic.twitter.com/lXroDLJFNA— Dov Kleiman (@NFL_DovKleiman) October 9, 2026 Ditka þótti einstaklega harður í horn að taka og var afar ófyrirleitinn í sinni nálgun sem þjálfari eins og góður maður orðaði það eitt sinn. Svo grimmur var Ditka að eftir eina tap Bears árið 1985 þá slóst hann við varnarþjálfara liðsins, Buddy Ryan. Lið Bears var það gott að það átti ekki að tapa leik. Enn í dag er það aðeins lið Miami Dolphins árið 1972 sem hefur farið í gegnum heila leiktíð án þess að tapa leik. Það var einmitt Dolphins sem vann þennan eina leik gegn Bears. Bears-liðið 1985 heillaði ekki bara stuðningsmenn Bears heldur þjóðina alla. Liðið var uppfullt af skrautlegum leikmönnum sem gerðu lífið skemmtilegra. Gott dæmi um það er hið ógleymanlega Super Bowl Shuffle lag liðsins sem var gefið út í desember eða áður en liðið fór alla leið og vann Super Bowl. Árið 1988 fékk Ditka hjartaáfall en var mættur á hliðarlínuna sem ráðgjafi viku síðar og sem aðalþjálfari vikuna þar á eftir. Það tímabil var hann aftur valinn þjálfari ársins. Engum líkur. Allt sprakk að lokum í loft upp árið 1992 og Ditka var rekinn í janúar 1993. Fyrir utan þrjú ár (1997-1999) sem þjálfari Saints var Ditka sjónvarpsstjarna að fjalla um NFL-deildina. Hann sinnti því starfi af sömu ástríðu og sem þjálfari og leikmaður. Þrátt fyrir harðan skráp þá gat Ditka verið laufléttur og það var ekki að ástæðulausu að hann sló í gegn sem sjónvarpsmaður.
NFL Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Sjá meira