Spá aukinni verðbólgu í apríl Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 10:16 Greiningardeild Landsbankans spáir í spilin. Vísir/vilhelm Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga muni hækka úr 5,4 prósentum í 5,5 prósent í apríl. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafi þar mest áhrif á hækkun milli mánaða samkvæmt spánni.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu. Greiningardeildin spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05 prósent milli mánaða í apríl. Segir deildin að lægri virðisaukaskattur á eldsneyti muni skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði en að áfram sé töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi. „Hækkun ársverðbólgu í mars mátti að stærstum hluta rekja til hækkandi eldsneytisverðs vegna átakanna við Persaflóa. Við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram nú í apríl. Hærri flugfargjöld hafa einnig áhrif til hækkunar á ársverðbólgu gangi spáin eftir. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga verði til lækkunar á ársverðbólgu þriðja mánuðinn í röð og að verð á matarkörfunni hækki nokkuð minna en síðustu mánuði og hafi einnig áhrif til lækkunar ársverðbólgu.“ Segir greiningardeildin að verðbólguspáin til næstu mánaða sé aðeins lægri en sú sem birst hafi 26. mars, eftir birtingu síðustu verðbólgumælingar. Spáin sé að mestu óbreytt fyrir aprílmánuð en lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi mest áhrif á lægri spá í maí. „Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 1,05% í apríl, lækki síðan um 0,36% í maí og hækki síðan um 0,35% í júní og 0,03% í júlí. Gangi það eftir mun verðbólga mælast 5,5% í apríl, 4,9% í maí og 4,6% í júní og júlí.“ Sjá nánar á vef Landsbankans.
Landsbankinn Efnahagsmál Fjármál heimilisins Verðlag Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira