Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Lovísa Arnardóttir skrifar 16. apríl 2026 07:50 Guðrún Karls Helgudóttir biskup segir ánægjulegt að skráningum hafi fjölgað í Þjóðkirkjuna. Vísir/Vilhelm Presta- og djáknastefna fer þessa dagana fram á Akureyri. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem biskup Íslands kallar vígða þjóna kirkjunnar til fundar við sig og samtals. Biskup fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna en segir mega gera betur. „
Þetta er stór viðburður ár hvert þegar prestar koma saman til prestastefnu og þá er það biskup sem kallar presta og djákna til presta- og djáknastefnu til að ræða praktísk mál annars vegar og guðfræði hins vegar,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir biskup og að í ár hafi verið farið á dýptina og í kjarnann til að ræða játningar kirkjunnar. Rætt var við Guðrúnu í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi. „Það er svona grunnurinn sem við stöndum á kenningarlega,“ segir hún og að það sé guðfræði. Guðrún segir presta og djákna einnig hafa rætt skráningarmál og að þau fagni því að þeim hafi fjölgað en þau hafi eitthvað rætt um það hvernig Þjóðkirkjan geti tekið skráningar fastari tökum. „Það er svo mikið af fólki sem heldur að það sé í Þjóðkirkjunni en er það ekki,“ segir hún og að þau vilji leita leiða til að koma þessum upplýsingum til þeirra. Fjölgaði um einn Fram kom í tilkynningu frá Þjóðskrá fyrr í vikunni að alls hafi 224.057 einstaklingar verið skráðir í Þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og er það því fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Samkvæmt gögnum Þjóðskrár voru þann 1. desember skráð í Þjóðkirkjuna 224.056 og hefur því fjölgað um einn en þó verður líklega að gera ráð fyrir því að einhverjir hafi látist og að skráningum hafi þannig fjölgað í samræmi við það. Á vef Hagstofunnar má sjá að frá 2021 til 2024 létust frá 2331 til 2689 á ári. Það eru um 220 á mánuði. Miðað við það mætti því gera ráð fyrir að frá desember og þar til í apríl hafi fjölgað um 800 manns. Vinafundur og gagnleg samkoma Í kvöldfréttunum var einnig rætt við Óskar Hafstein Óskarsson, prófast í Suðurprófastsdæmi. Hann segir þetta afar gagnlega samkomu og mikinn vinafund. Fram kom í fréttinni að eftir viðtalið stæði til að halda ball á Hótel KEA þar sem von væri á um 120 gestum og Eva Ruza ætlaði að sjá um að skemmta. „Prestar skemmta sér meðal annars með því að fara á Græna hattinn, eins og var gert í gærkvöldi, og syngja sálma og samkoman endaði á þjóðsöngnum, og nú verður bara dansiball og góður matur,“ segir biskup.
Trúmál Þjóðkirkjan Akureyri Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira