Körfubolti

Oln­bogi Ægis brotnaði

Aron Guðmundsson skrifar
Ægir Þór var sárþjáður
Ægir Þór var sárþjáður Vísir/Anton

Ægir Þór Steinarsson olnbogabrotnaði í leik með Stjörnunni gegn KR í úrslitakeppni Bónus deildarinnar í körfubolta. Hann gekkst undir aðgerð í gærkvöldi. 

Þetta staðfestir Stjarnan í færslu á samfélagsmiðlum. Aðgerðin ku hafa gengið vel og hefst nú bataferlið hjá Ægi sem tekur ekki meiri þátt á tímabilinu. 

Meiðsli Ægis komu í leik fjögur í einvígi Stjörnunnar og KR í gær og varð fljótt ljóst að meiðslin væru alvarleg. 

Landsliðsfyrirliðinn lenti og sneri illa upp á olnbogann sem brotnaði við höggið. Hann var seinna fluttur af vettvangi í sjúkrabíl.

Áfallið er mikið fyrir lið Stjörnunnar sem sýndi þó mikinn styrk og vann leikinn gegn KR sem var tvíframlengdur. Sigurinn gerir það að verkum að Stjarnan hefur tryggt sér sæti í undanúrslitum Bónus deildarinnar. 

Það má sjá meiðslin hjá Ægi hér fyrir neðan en rétt er að vara viðkvæma við myndbandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×