Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Kjartan Kjartansson skrifar 14. apríl 2026 14:17 Veitingahúsið Flame í Katrínartúni. Starfsmenn þar gengu út eftir eftirlitsheimsókn Matvís. Fyrirtækið þurfti að greiða fyrrverandi starfsmönnum vangoldin laun en Matvís var einnig dæmt bótaskylt fyrir að ýta undir uppsagnir starfsfólksins. Vísir/Egill Hæstiréttur hafnaði beiðni stéttarfélagsins Matvís um að áfrýja dómi um að það væri skaðabótaskylt gagnvart eigendum veitingastaðarins Flame. Ummæli starfsmanna Matvís við eftirlitsferð var talið hafa leitt til þess að hópur starfsfólks gekk út af vinnustaðnum.
Eigendur Flame voru dæmdir til þess að greiða fyrrverandi starfsmönnum sínum milljónir króna í vangoldin laun eftir að Matvæla- og veitingafélag Íslands (Matvís) stefndi þeim fyrir dómi í fyrra. Veitingamennirnir létu krók koma á móti bragði og stefndu Matvís vegna tjóns sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir vegna eftirlitsheimsóknar félagsins. Sérstaklega voru það ummæli eftirlitsmanna Matvís um fjárhagsstöðu veitingastaðarins og skoðun þeirra um að starfsmennirnir fengju líklegast ekki greidd laun um næstu mánaðamót sem fóru fyrir brjóstið á eigendunum. Matvís var dæmd skaðabótaskylt í Landsrétti í lok janúar en dómstóllinn staðfesti niðurstöðu úr héraði. Félagið fór fram á að Hæstiréttur leyfði því að áfrýja niðurstöðunni en þeirri beiðni hafnaði rétturinn á föstudag. Hæstiréttur taldi málið ekki uppfylla nein þeirra skilyrða sem sett eru fyrir því að hann taki þau upp. Málið hefði hvorki verulegt almennt gildi né varðaði það sérstaklega mikilvæga hagsmuni Matvís. Dómur Landsréttar hefði heldur ekki verið bersýnilega rangur. Landsréttur taldi Matvís skaðabótaskylt gagnvart Tappanyaki Icelandi, eiganda Flame, þar sem ekki yrði annað séð en að framganga fulltrúa félagsins í eftirlitsheimsókninni hefði verið veigamikil ástæða þess að starfsfólkið hætti störfum í kjölfarið. Engu breytti þótt veitingastaðurinn hefði brotið kjarasamninga starfsfólks og ættu þannig ákveðna sök á því hvernig fór.
Dómsmál Veitingastaðir Kjaramál Stéttarfélög Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira