Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson og Jónas Guðnason skrifa 13. apríl 2026 15:03 Fyrsta og þriðja sæti á lista Okkar Hveragerðis skipa tveir einstaklingar sem þekkja íþróttalífið í bænum út og inn. Gildi hreyfingar, aga og liðsheildar eru okkur dýrmæt. Reynslan sýnir þó að bæjarbúar hafa þurft að sýna mikla þolinmæði gagnvart uppbyggingu íþróttamannvirkja á síðustu árum. Sem foreldrar og virkir þátttakendur í starfi Hamars skiljum við þá tilfinningu mætavel að hafa farið í gegnum tímabil vonbrigða vegna tafa á framkvæmdum. Þessi skilningur byggir á daglegri viðveru í íþróttahúsinu. Lárus er þar á gólfinu sem þjálfari 10 og 11 ára drengja í körfuknattleik og Jónas gætir hagsmuna félagsins í aðalstjórn sem gjaldkeri. Það er óhætt að segja að við vitum nákvæmlega hvar skórinn kreppir. Þrautseigja sem vert er að dást að Eins og stundum vill gerast í krísum þá koma styrkleikar samfélagsins í ljós. Á síðustu árum hafa iðkendur, foreldrar, þjálfarar og sjálfboðaliðar í Hamri sýnt ótrúlega þrautseigju. Það sést best á því að fjöldi iðkenda heldur áfram að aukast og starfið blómstrar sem aldrei fyrr, þrátt fyrir þrengsli og takmarkaða aðstöðu. Slíkur kraftur sýnir hversu dýrmætt íþróttastarfið er samfélaginu okkar. Hann hvetur okkur til að halda ótrauð áfram að byggja upp fyrsta flokks aðstöðu í Hveragerði. Við skuldum Hvergerðingum að aðstaðan verði loksins í samræmi við þann mikla metnað sem ríkir innan félagsins. Nýir kraftar – sama markmið Markmiðið með framboði okkar er fyrst og fremst að tryggja að íþróttamál séu ætíð í öndvegi. Sú mikla vinna sem núverandi meirihluti vann við að rétta við fjárhag bæjarins er forsenda þeirrar uppbyggingar sem nú er hafin. Ráðdeild í rekstri tryggir að Hvergerðingar sjá nú fram á íþróttaaðstöðu sem nýtist öllum greinum og aldurshópum. Leikskipulagið okkar er skýrt: Nýr gervigrasvöllur: Glæsilegur völlur í fullri stærð verður tekinn í notkun í vor. Hann mun gjörbreyta knattspyrnuaðstöðu strax í sumar og börnin okkar geta loksins spilað sína leiki í heimabyggð. Nýtt íþróttahús: Uppbygging hófst á kjörtímabilinu og miðar framkvæmdum vel áfram. Nú er tækifæri til að fylgja verkinu alla leið eftir. Allt verður gert sem í okkar valdi stendur til að tryggja að húsið verði tilbúið til æfinga árið 2027. Um er að ræða fjölnota aðstöðu sem nýtist öllum deildum Hamars, skólastarfi og heilsueflingu eldri borgara í gegnum verkefnið „Gott að eldast“. Stjórnsýsla sem styður við starfið: Íþróttamál munu heyra undir nýtt mennta-, menningar- og lýðheilsusvið. Markmiðið er að auka gæði, einfalda samskipti og stytta boðleiðir. Með því léttum við á sjálfboðaliðum Hamars svo þeir geti einbeitt sér að iðkendunum frekar en pappírsvinnu og viðhaldið stöðu félagsins sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Lýðheilsa í forgrunni Íþróttir eru besta forvörnin. Okkar megináhersla er að setja metnaðarfulla lýðheilsustefnu þar sem nálægð okkar við einstaka náttúru og öflugt íþróttalíf rennur saman í eitt. Sýn okkar felur í sér öfluga hjólreiðamenningu með samfelldum stígum til nágrannasveitarfélaga. Jafnframt verður lögð áhersla á gerð skynjunar- og upplifunargarðs og uppbyggingu útisvæða þar sem íbúar geta fundið kyrrð og notið náttúrunnar sem umlykur bæinn okkar. Við biðjum um ykkar traust til að leiða þessa vinnu. Þið þekkið okkur af vellinum og úr starfi Hamars – þið vitið að við erum vanir að klára leikinn. Gerum þetta saman fyrir Okkar Hveragerði. Höfundar eru í framboði fyrir Okkar Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira