Golf

Strangar reglur í kringum græna Masters jakkann

Aron Guðmundsson skrifar
Rory þurfti að bíða í sautján ár eftir sigri á Masters mótinu. Nú hefur hann unnið mótið tvö ár í röð og skartar hér græna jakkanum víðfræga.
Rory þurfti að bíða í sautján ár eftir sigri á Masters mótinu. Nú hefur hann unnið mótið tvö ár í röð og skartar hér græna jakkanum víðfræga. Vísir/Getty

Græni jakkinn sem Masters meistarar í golfi klæðast er frægasti jakkinn í íþrótta­heiminum. Rory McIl­roy klæddist einum annað árið í röð eftir sigur á þessu fyrsta risamóti ársins í gær. Jakkanum fylgja hins vegar strangar reglur og er hefðin einnig rík í kringum hann.

Með sigri á Masters hlýtur sigur­vegarinn eilífðar þátt­tökurétt á Masters mótinu sem og fulla aðild að Augusta National golf­klúbbnum. Græni jakkinn eftir­sótti og marg­frægi fylgir sömu­leiðis.

Einn af stofn­endum Augusta National golf­klúbbsins, Clif­ford Roberts, kom með hug­myndina að græna jakkanum.

Reglurnar í kringum græna jakkann eru skýrar en jakkinn var fyrst klæddur Masters meistaranum Sam Snead árið 1949. Meistarar fyrri ára fengu síðan jakka í sinn hlut.

Allir Masters meistarar í sögunni verða að klæðast græna jakkanum á svæðinu í kringum klúbb­hús Augusta National golf­klúbbsins á Masters helginni. Þar eru jakkarnir geymdir. En meðlimir í Augusta National golf­klúbbnum fá einnig græna jakkann.

Aðeins ríkjandi meistari Masters mótsins má fara með græna jakkann sinn af svæði Augusta National golf­klúbbsins á því ári sem hann er ríkjandi meistari. Jakkanum verður að skila fyrir Masters mótið ári síðar.

Gary Player, þre­faldur Masters meistari frá Suður-Af­ríku, tók óvart græna jakkann með sér aftur heim eftir að meistaratíð hans í kjölfar fyrsta sigursins hafði lokið. Þáverandi for­maður Augusta National golf­klúbbsins setti sig í sam­band við Player og bað hann um að skila jakkanum. Player grínaðist í honum að for­maðurinn yrði bara að sækja jakkann.

Hefðin felur það í sér að Masters meistari fyrra ársins klæðir nýjan Masters meistara í græna jakkann. En nú hefur það gerst fjórum sinnum í sögu mótsins að Masters meistari hefur varið sinn titil, nú síðast í gær með sigri Rory McIl­roy. Þá er það for­maður Augusta National golf­klúbbsins sem klæðir meistarann í jakkann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×