Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 12. apríl 2026 13:30 Myndin er tekin árið 2024. vísir/vilhelm Formaður hagsmunasamtaka um endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur vonast til að bæjaryfirvöld haldi áfram vinnu við undirbúning skólastarfs í bænum þrátt fyrir tilmæli um að börn flytji ekki til Grindavíkur meðan óvissa varir. Margt geti breyst á stuttum tíma og mikilvægt að halda uppbyggingu áfram.
Ný rammaáætlun Grindavíkurnefndar var kynnt á föstudag en meðal þess sem þar kom fram er að nefndin mælir ekki með því að barnafjölskyldur flytji aftur til Grindavíkur meðan óvissa varir enn í bænum. 70 börn forskráð í skólann Stutt er síðan skólastjóri var ráðinn í nýjum samreknum leik- og grunnskóla í Grindavík en markmið ráðningarinnar var að hægt væri að bjóða upp á skólastarf í bænum næsta haust. Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður Járngerðar, hagsmunasamtaka um endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur og oddvitaefni Sjálfstæðisflokksins í bænum segir niðurstöðu nefndarinnar mikil vonbrigði. „Bærinn gerði forkönnun á vilja foreldra til að koma heim og skrá börnin sín í skólastarf og það voru um 70 nemendur sem lýsir hugi fólks að koma heim aftur þannig þetta var svolítill skellur en þetta eru tilmæli. Það er langur tími þar til skólahald hefst þó það sé stuttur tími í sjálfu sér.“ Og bendir hún á að margt geti breyst á næstu vikum og mánuðum. Hún vonast til að bæjaryfirvöld haldi sig við þá stefnu að hefja skólastarf og aðra uppbyggingu í bænum en tekur fram að enginn afsláttur verði gefinn af öryggi í Grindavík. Krítískur tími Það er sem sagt ykkar ósk að þessari vinnu verði framhaldið og að skólastarf verði í bænum í haust? „Klárlega. Þetta er mjög mikilvægur tími í uppbyggingu bæjarins, að fá mannlífið aftur í gang. Við vitum alveg að það verður með smáu sniði en við verðum að byrja einhvers staðar.“
Grindavík Skóla- og menntamál Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum Sjá meira