„Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 10. apríl 2026 19:05 vísir/einar/Anton Brink Teymisstýra Bjarkarhlíðar segir birtingu falskrar dánartilkynningar vera enn ein birtingarmynd þess hve langt elltihrellar eru tilbúnir að ganga til að ná athygli þolenda sinna. Lögreglan mun fara fram á gæsluvarðhald yfir konu sem var handtekin vegna málsins.
Sölvi Guðmundarson vaknaði upp við vondan draum í morgun þegar hann sá sína eigin dánartilkynningu í Morgunblaðinu. Hann tilkynnti vinum sínum og fjölskyldu í kjölfarið að hann væri sprelllifandi þrátt fyrir tilkynninguna í færslu á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann Írisi Helgu Jónatansdóttur bera ábyrgð á uppátækinu og sakaði lögregluna um hægagang. Sjö menn hafa kært Írisi fyrir umsáturseinelti og leitaði Sölvi fyrst til lögreglu vegna hennar árið 2024. Morgunblaðið birti í kjölfarið frétt þar sem kom fram að lögreglunni hafi verið gert viðvart og að leitað yrði leiða til að koma í veg fyrir að atvikið myndi endurtaka sig. Blaðið bað Sölva og lesendur afsökunar vegna málsins. Svo fór að lögreglan á Suðurnesjum handtók konu í þágu rannsóknar á umsáturseinelti vegna málsins en farið verður fram á gæsluvarðhald yfir henni á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður farið fram á fjórar vikur í varðhaldi og er verið að kanna undir hvaða lagaákvæði er hægt að fella háttsemina undir . „Þetta snýst um að fá viðbrögð“ Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir umsáturseineltismál alltof algeng hér á landi og erfitt sé að bregðast við þeim. „Það hefur frekað verið þannig á Íslandi að það hefur verið þótt íþyngjandi fyrir gerendur að sæta nálgunarbanni frekar en að þetta sé nýtt til að tryggja öryggi þolenda. Það eru alltof fá dæmi um að þetta sé nýtt. Það þarf að líta á þessi mál þannig að þetta eru íþyngjandi brot sem er verið að beita þolendur, oft yfir langan tíma. Þetta grefur undan öryggi þolenda og hefur áhrif á þeirra persónulega líf.“ Birting dánartilkynningar sé enn eitt dæmið um hve langt eltihrellar eru tilbúnir að ganga til að ná athygli þolenda. „Þá sjáum við mörg dæmi þess að gerendur noti aur forritið eða eitthvað annað app til að senda eina krónu á milli því þá geturðu sent skilaboð. Þegar gerendur hafa kannski aðgang að bílum með einhvers konar appi. Þá hafa verið dæmi um það að þeir séu að skrúfa niður rúðurnar því þá fennir inn í bílana eða opna skottið þá rignir þar inn. Þegar gerandi lætur ekki af þessari hegðun þá er það alltaf mjög skaðlegt fyrir þolendur,“ segir hún og bætir við að með nýrri tækni komi gjarnan ný tækifæri fyrir gerendur. „Með öllum þessum möguleikum sem eru til í dag þá eru tækifæri gerenda endalaus til að hafa neikvæð áhrif á líf þolenda. Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra til að fá viðbrögð. Þetta snýst um að fá viðbrögð og svörun. Eftir því sem þetta gengur lengra getur verið erfitt að svara ekki.“ Gerendur gangi eins lang og hægt er Fimm prósent þeirra sem leituðu til Bjarkarhlíðar á síðasta ári, eða 40 manns, höfðu orðið fyrir kyrkingartökum, kynferðislegu ofbeldi og eltihrellihegðun. „Þetta þrennt er alltaf í málum sem hafa farið á versta veg, það er þegar gerandi tekur líf þolanda síns. Það er erfitt að eiga við þessi mál, úrræði lögreglunnar eru ekki mörg. Eltihrellahegðun er ein alvarlegasta birtingarmynd ofbeldis í nánum samböndum.“ Þekkirðu einhver sambærileg mál eins og það sem kom upp í morgun? „Ekki alveg eins og þetta en við sjáum auðvitað það að gerendur ganga eins langt og þeir mögulega geta og hafa hugmyndaflug til. Það eru alltaf að koma nýjar birtingarmyndir ofbeldis vegna þess að gerendur finna allar þær leiðir sem þeim dettur í hug. Þetta er enn eitt dæmið um það.“
Lögreglumál Stafrænt ofbeldi Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira