Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2026 10:13 Kókaínklóríð var falið í rauðvínsbeljum í bíl manns sem kom með Norrænu til landsins í nóvember. Vísir/Jóhann K. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember.
Um 9.000 millílítrar af kókaínklóríði með 46-47 prósent styrkleika voru faldir í tveimur rauðvínskössum um borð í Peugeot-bifreið sem Ali Aoudia, einn mannanna, kom með til Seyðisfjarðar 12. nóvember. Lögregla lagði hald á efnin og skipti þeim út fyrir gerviefni áður en smyglarinn fékk bifreiðina í hendur. Eftirfarar- og hlustunarbúnaði var jafnframt komið fyrir í bílnum og fylgdist lögreglan með ferðum hans. Hinir tveir mennirnir, þeir Higor De Souza Bernardo og Marco Antonio Raizer Marafon, voru handteknir þegar þeir veittu gerviefnunum móttöku í Reykjavík þremur dögum eftir að Norræna kom til landsins. Þeir höfðu komið til landsins daginn áður frá Mílanó á Ítalíu en báðir voru búsettir á Spáni. Albert Einstein og Mad Drugs Fjallað er um samskipti mannanna í spjallhópi á dulkóðaða samskiptamiðlinum Signal í dómnum. Tveir þeirra sem voru í hópnum eru enn óþekktir en þeir gengu undir dulnefnunum Albert Einstein annars vegar og Mad Drugs hins vegar. Einstein virðist hafa verið rangnefni því notandinn sem kallaði sig því nafni ræddi um að „þeir“ ætluðu að leita í allri bifreiðinni en að þeir ættu ekki eftir að finna neitt. Virðist hann þar hafa vísað til lögreglunnar. Þegar hann sendi þau skilaboðin var bifreiðin þegar í höndum íslenskra tollayfirvalda. Þegar mennirnir sem flugu til landsins frá Ítalíu komu hingað sendu þeir Einstein skilaboð um að þeir væru komnir til „heilaga landsins“. Sögðust komnir til að njóta norðurljósanna Maðurinn sem kom með bifreiðinni með Norrænu neitaði sök. Hann bar því við að hann hefði fengið vínbeljurnar að gjöf og verið beðinn um að fara með það til Íslands og afhenda manni þar. Hann hefði ætlað að koma til Íslands í fimmtán daga frí. Lýsti hann nokkurri iðrun yfir því að hafa tekið þátt í smyglinu og viðurkenndi að hann hefði haft óljósan grun um að ekki væri allt eins og það ætti að vera. Hann hefði þó verið grunlaus um hvað. Higor, annar mannanna sem kom frá Ítalíu, sagðist aðeins hafa átt að taka við efnunum, geyma og afhenda svo öðrum. Þeir Ali þvertóku fyrir að Marco, hinn maðurinn sem kom frá Ítalíu hefði átt þátt í smyglinu. Þeir tveir hefðu komið til Íslands til þess að njóta norðurljósanna. Marco hélt því fram að hann hefði ekki vitað af efnunum sem Higor setti í bíl þeirra eftir að hann tók við þeim af Ali. Hann hefði ekki vitað af því að um fíkniefni hefði verið að ræða fyrr en við aðra skýrslutöku hjá lögreglu. Hefði verið hægt að framleiða rúm sex kíló Dómurinn taldi framburð Ali trúverðugan eins langt og hann næði. Ætla mætti þó að hann hefði vitað meira um málið en hann viðurkenndi. Brot hans væri sannað með hans eigin framburði. Framburður Higors um aðkomu Marcos að málinu þótti dómnum ótrúverðugur enda hefði hann ekki samræmst öðrum gögnum málsins og fyrri framburði Higors sjálfs hjá lögreglu. Einnig taldi dómurinn framburð Marcos ótrúverðugan vegna innra ósammræmis og andstöðu við önnur gögn og framburð Higors. Taldi dómurinn allt benda til þes að um skipulega og lagskipta brotastarfsemi hefði verið að ræða þar sem allir ákærðu hefðu verið þátttakendur ásamt fleirum. Enginn mannanna hafði áður hlotið dóm á Íslandi. Þeim til refsiþyngingar var litið til þess að þeir hefðu staðið saman að brotunum sem hefðu verið alvarleg og stórfelld. Hægt hefði verið að framleiða rúm sex kíló af kókaíni með efnunum sem þeir smygluðu til landsins.
Dómsmál Fíkniefnabrot Fjarðabyggð Norræna Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira