Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Tómas Arnar Þorláksson skrifar 8. apríl 2026 12:07 Tænirisin Anthropic ætlar ekki að gera nýjasta líkan sitt aðgengilegt almenningi. AP Nýjasta gervigreindarlíkan tæknirisans Anthropic er umtalvert öflugra en núverandi tækni. Með hjálp líkansins hafa fundist yfir þúsund öryggisbrestir og veikleikar í þekktum stýrikerfum og vöfrum. Dósent í tölvunarfræði segir tímaspursmál hvenær slík tækni endar í röngum höndum sem gæti haft geigvænlegar afleiðingar.
Fyrirtækið Anthropic, sem er fremst meðal jafningja þegar það kemur að þróun gervigreindar sem sérhæfir sig í forritun og öðrum tæknilausnum, tilkynnti í gær að nýjasta líkan forritsins Claude yrði ekki gert aðgengilegt almenningi þar sem afleiðingar þess gætu orðið geigvænlegar. Að þeirra sögn hefur líkanið sem ber heitið Claude Mythos fundið yfir þúsund veikleika og öryggisbresti í sumum þekktustu stýrikerfum og vöfrum heims. Samkvæmt skýrslu fyrirtækisins er líkanið umtalsvert öflugra en færustu líkön sem eru aðgengileg í dag. Anthropic hefur því ákveðið að gefa 40 tæknirisum aðgang að forritinu til að gera þeim kleift að tryggja hugbúnað sinn fyrir mögulegum tölvuárásum. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times. Tímaspursmál hvenær tæknin verði nýtt til ills Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, segir nýtt landslag blasa við þegar það kemur að netöryggi og gervigreind. „Það er bara tímaspursmál hvenær svona gervigreindarlíkön komast í hendur einhverra óprúttinna aðila. Það sem Anthropic er að setja af stað er verkefni sem heitir Project Glass Wing og þau vilja bregðast við þessari nýtilkomnu ógn með því að nota gervigreindina til að verjast árásum áður en aðrir nota hana til ills. Þeir eru að gefa samstarfsaðilum sínum og jafnvel keppinautum tækifæri til að nota líkanið til að skanna sín kerfi og styrkja þau.“ Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.vísir/ívar Anthropic sé að leggja til 100 milljónir Bandaríkjadala til að aðstoða stofnanir og fyrirtæki til að tryggja sínar varnir. „Ástæðan fyrir að verkefnið heitir Project Glass Wings er svolítið áhugaverð. Project Glasswing er vísun í tegund fiðrildis sem er með glæra vængi og það gerir fiðrildinu kleift að fela sig fyrir þeim sem vilja ráðast á þá. Þetta endurspeglar eðli þeirra öryggisgalla sem hafa verið opnir og beint fyrir framan nefið okkar í mörg ár. Út af því að tölvukerfið er orðið svona flókið að þá hafa gallarnir verið mjög vel faldir fyrir fólki. Fólk hefði mögulega getað fundið þessa galla en það hefði tekið rosalega langan tíma. Núna með þessu gervigreindarlíkani er verið að afhjúpa þessa öryggisgalla mun hraðar. Það er heilmikið af göllum í hugbúnaði sem eru nú þegar í notkun.“ Stjórnvöld á Íslandi þurfi að huga að sínum vörnum Hafsteinn segir gífurlega hagsmuni í húfi. Orku-, heilbrigðis-, og fjármálakerfi séu undir ásamt fleiri kerfum. „Stjórnvöld þurfa mögulega að fara að spá í því hvernig þau ætla að vernda mikilvæga innviði á Íslandi. Þau þurfa mögulega að setja strangari kröfur um netöryggi hjá stofnunum og fyrirtækjum sem halda uppi mikilvægum innviðum á Íslandi. Þá er spurning hvort þau þurfi að fá aðgang að þessu líkani til að skanna sína innviði til að koma auga á einhverja veikleika.“ Má búast við því að hernaður og jafnvel hryðjuverk færist meira í svona árásir á næstu árum? „Það er það sem fólk hefur verið að benda á og hefur haft áhyggjur af. Það var svolítið í umræðunni á síðasta ári grein frá svona spámönnum í Bandaríkjunum sem kallaðist AI 2027. Þau voru að að giska á að allt myndi fara til fjandans árið 2027. Sú spá með þessari tilkynningu virðist svolítið vera að ganga eftir. Með þessari tilkynningu frá Anthropic þá erum við í rauninni svolítið á undan þeirri tímalínu sem var sett fram í þeirri spá.“ Hann segir að árið 2029 muni dulkóðun jafnvel ekki reynast nægileg vörn. „Annað tengt þessu líka er að nýlega var Google að uppfæra sín viðmið um öryggi út af dulkóðun, sem verður kannski hægt að brjóta fyrr heldur en fólk áætlaði með skammtatölvum. Það var eitt af því sem kannski árásaraðilar eru að gera í dag. Þeir eru bara að safna öllum dulkóðuðum gögnum sem við erum að senda yfir netið. Og síðan á einhverjum tímapunkti þegar þessar aðferðir verða orðnar nógu góðar til þess að brjóta dulkóðunina, þá hafa þeir aðgengi að öllum gögnunum okkar. Google var í lok mars að uppfæra sínar spár varðandi það hvenær þetta verður hægt. Og þau eru að tala um að kannski árið 2029 séu ný viðmið sem fólk á að vera að hugsa um miðað við hvernig hlutirnir hafa verið að þróast.
Gervigreind Tækni Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Sjá meira