Golf

Fór holu í höggi á al­þjóð­legu móti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Óliver Elí Björnsson með kúluna eftir að hafa farið holu í höggi.
Óliver Elí Björnsson með kúluna eftir að hafa farið holu í höggi. Golfsamband Íslands

Íslenski landsliðskylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili fór holu í höggi á fjórðu holu PGA Aroeira 1-vallarins um helgina. Óliver var á meðal keppenda í GJG Juniors International-mótinu ásamt nítján öðrum landsliðskylfingum.

Fjórða hola PGA Aroeira 1 vallarins er 154 metrar og sló Óliver höggið með átta járni.

Með högginu fullkomnaði landsliðskylfingurinn ótrúlegan fimm holu kafla sinn, er hann lék fimm holur á fimm höggum undir pari.

Óliver hóf leik á tíundu holunni og lauk seinni níu holunum með fugli á átjándu holunni. Á fyrstu holunni fékk Óliver örn og fylgdi honum eftir með fugli á annarri. Hann fékk skolla á þriðju holunni og svo loks ás á þeirri fjórðu.

Óliver lék hringinn á 71 höggi, einu undir pari, og endaði fjórði í mótinu. Það er frábær árangur hjá þessum efnilega kylfingi.

Eva Kristinsdóttir úr  Golfklúbbi Mosfellsbæjar stóð uppi sem sigurvegari kvenna á mótinu eftir flotta spilamennsku. Hún leiddi mótið frá fyrsta hring og lauk leik á fjórum höggum yfir pari í heildina. Eva lék hringina þrjá á 70-74-76 höggum og var fjórum höggum á undan hinni frönsku Céleste Bobo Lloret.

Pamela Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð þriðja á þrettán höggum yfir pari. Hún lék hringi mótsins á 80-77-72 höggum.

Arnar Daði Svavarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sem lék best íslensku strákanna. Hann lék mótið á einu höggi yfir pari í heildina og endaði þriðji. Arnar endaði mótið af krafti og fékk tvo erni á síðustu fjórum holum lokahringsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×