Treystum foreldrum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 6. apríl 2026 14:00 Staða leikskóla borgarinnar eru nú enn einu sinni kosningamál. Enda hefur ákvarðanafælni ráðið ríkjum í þeim efnum alltof lengi. Biðlistar lengjast, húsnæði drappast niður, starfsfólk er undir miklu álagi og foreldrar finna fyrir óvissu. Í stað þess að reyna sífellt að plástra kerfi sem nær ekki að anna eftirspurn er kominn tími til að hugsa lausnir sem virka í raun. Heimgreiðslur eru ein slík lausn. Skynsamleg, hagkvæm og fyrst og fremst fjölskylduvæn. Hugmyndin er einföld, að gefa foreldrum raunverulegt val. Með heimgreiðslum upp á um 250 þúsund krónur á mánuði geta foreldrar valið að vera lengur heima með börnum sínum á fyrstu og mikilvægustu árum ævinnar. Fyrir marga foreldra er þetta einmitt það sem þeir hafa kallað eftir. Rannsóknir benda til þess að fyrstu ár barns séu lykiltími í þroska þess, bæði tilfinningalega og félagslega. Náið samband við foreldra á þessum tíma skiptir sköpum. Með heimgreiðslum er verið að skapa aðstæður þar sem fleiri fjölskyldur geta tekið þá ákvörðun að verja meiri tíma með börnum sínum án þess að fórna fjárhagslegu öryggi. Þetta er jafnframt hagkvæm lausn fyrir borgina. Kostnaður við hvert barn í leikskóla er í dag nærri tvöfalt hærri en sú upphæð sem hér um ræðir. Með því að dreifa álaginu og gefa hluta foreldra kost á að vera heima er hægt að létta verulega á leikskólakerfinu án þess að auka útgjöld. Þetta er einfaldlega betri nýting fjármuna. Heimgreiðslur geta einnig haft jákvæð áhrif á samfélagið til lengri tíma. Þær skapa hvata fyrir fólk til að eignast börn fyrr, til dæmis á meðan það er í námi, í stað þess að fresta barneignum vegna fjárhagslegrar óvissu eða skorts á úrræðum. Gagnrýni á heimgreiðslur hefur að mestu snúist um jafnréttissjónarmið. Slík umræða er mikilvæg, en hún má ekki skyggja á kjarna málsins, hagsmuni barna. Þegar kemur að börnum ætti forgangsröðunin að vera skýr. Að tryggja börnum öruggt, stöðugt og nærandi umhverfi á fyrstu árum ævinnar er eitt það mikilvægasta sem samfélagið getur gert. Heimgreiðslur snúast ekki um að taka eitthvað í burtu, heldur að bæta við valkosti. Með þeim erum við treysta foreldrum til að taka ákvarðanir sem henta þeirra fjölskyldu best. Þær létta á kerfi sem er komið að þolmörkum. Og þær setja börnin í fyrsta sæti. Höfundur er uppeldisfræðingur og skipar 2. sæti á framboðslista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar