NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Freyja Þórisdóttir skrifar 4. apríl 2026 08:44 Á myndinni má meðal annars sjá glitta í Afríku og Suður-Ameríku. Þá má einnig greina norðurljós lík þeim sem dönsuðu yfir Íslandi í gærkvöldi. AP Geimferðastofnun Bandaríkjanna, betur þekkt sem NASA, hefur deilt myndum af jörðinni sem áhöfn Orion-geimfarsins, sem er nú á leið til tunglsins, tók úr geimfarinu á fimmtudaginn.
BBC greinir frá því að geimfararnir hafi ferðast tæpa 230 þúsund kílómetra frá jörðu og séu þar með meira en hálfnaðir á leið sinni til mánans. Þau höfðu ferðast í tvo daga, fimm klukkustundir og tuttugu og fjórar mínútur þegar áhöfninni var tjáð að þau væru meira en hálfnuð með vegalengdina. Bandaríski geimfarinn Christina Koch sagði að áhöfnin hefði verið himinlifandi þegar henni var tilkynnt um áfangann. Yfirmaður leiðangursins, geimfarinn Reid Wiseman, tók þessar „stórkostlegu“ myndir, að sögn Nasa. Þá hafði áhöfnin nýlokið við síðasta bruna hreyfilsins sem kom þeim á braut í átt að næsta nágranna okkar á himninum. Miðilinn Al Jazeera segir frá því í frétt sinni að geimfararnir hafi tjáð sig um þá tilfinningu sem fylgir sjónarspilinu í myndsímtali við ABC News á fimmtudagskvöld. „Ég vissi að það væri það sem við myndum sjá,“ sagði Koch, sem er fyrsta konan sem ferðast í kringum tunglið, í myndsímtalinu. „En ekkert býr mann undir þá stórkostlegu tilfinningu að sjá heimaplánetuna sína bæði svona upplýsta eins og um hábjartan dag, en einnig tunglsljósið á henni að nóttu til, með fallegum geisla frá sólsetrinu. Meðvituð um að við munum fá svipað útsýni yfir tunglið. Ég er virkilega spennt fyrir því. Og svo auðvitað að halda aftur heim,“ bætti hún við. Victor Glover, annar geimfaranna, sagði einnig í samtali við ABC News að við tækjum okkur vel út frá þeirra sjónarhóli. „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út. Þið eruð svo falleg,“ sagði Glover við ABC og lýsti útsýninu yfir jörðina úr geimnum.
Geimurinn Artemis-áætlunin Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira