Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar 4. apríl 2026 07:32 Komið hefur sífellt betur í ljós að ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni fyrir réttum upplýsingum vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis í lok sumars um það hvort stefna eigi að inngöngu í Evrópusambandið. Eða eins og hún vill kalla það og orða það á atkvæðaseðlinum, um aðildarviðræður við ESB. Fundurinn í utanríkismálanefnd Alþingis í síðustu viku með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra er gott dæmi um þetta þar sem hún eyddi tímanum í að ræða flest annað en umræðuefni fundarins, Evrópumálin. Augljóslega til þess að koma sér hjá því. Nefndarmennirnir áttu hreinlega í stökustu vandræðum með að reyna að fá ráðherrann til þess að halda sig við efni fundarins og svara spurningum þeirra efnislega. Úr hennar eigin ráðuneyti Við höfum séð ófá dæmi af sama toga að undanförnu þar sem ríkisstjórnin og þá einkum Þorgerður talar þvert á gögn og staðreyndir. Jafnvel gögn úr sínu eigin ráðuneyti! Til dæmis þegar hún hefur sagt umsóknarferlið að ESB ekki ganga út á aðlögun þegar það kemur ekki aðeins skýrt fram í öllum gögnum sambandsins heldur einnig í greinargerðinni með þingsályktunartillögu hennar sjálfrar um þjóðaratkvæðið. Þar segir einfaldlega: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Stækkunarstjóri ESB, Marta Kos, hefur sagt það sama. „Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf ESB,“ sagði hún í samtali við norska ríkisútvarpið NRK 21. maí í fyrra. Kjósi eins og ráðherrann vill Við þekkjum frasann sem notaður hefur verið ótæpilega af ríkisstjórninni en þó langmest af utanríkisráðherra. Að hún treysti þjóðinni. Fátt ef eitthvað bendir þó til þess. Hvers vegna var til dæmis þjóðaratkvæðinu flýtt? Þorgerður varpaði ljósi á það í nýlegu viðtali fréttastöðvarinnar Euronews þar sem hún sagðist telja að ágætur möguleiki væri á því að samþykkti yrði að stefna á ESB — ef kosið væri núna. Síðan sagði hún: „On the other hand… you know…“ eða á ástkæra, ylhýra: „En hins vegar… þú veist…“ En kláraði ekki þá setningu og fór að tala um annað. Dagsetningin á þjóðaratkvæðinu í lok sumars er síðan augljóslega hugsuð til að lágmarka umræðuna. Þorgerður treystir þjóðinni þannig kannski núna en greinilega ekki seinna. Fréttavefurinn Politico hafði eftir Þorgerði 17. júlí á síðasta ári að hún „treysti íslensku þjóðinni til þess að ákveða að halda áfram“ umsóknarferlinu að ESB. Hún treystir sem sagt ekki þjóðinni til þess að taka sína eigin ákvörðun hver sem hún kunni að verða, ákveða það sjálf, heldur snýst það traust um að þjóðin kjósi eins og ráðherrann vill. Þá er líka eins gott að þjóðin viti ekki of mikið. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Pétur Zimsen Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Utanríkismál Mest lesið Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar