„KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. apríl 2026 11:03 Aðeins tvö efstu lið Bestu deildarinnar, Víkingur og Valur, skoruðu meira en KR á síðasta tímabili. vísir/diego Halldór Árnason, sérfræðingur Stúkunnar, segir að þrátt fyrir erfitt tímabil í fyrra verði KR ekki varfærnari í sinni nálgun. Hann telur að KR geti barist í efri hluta Bestu deildarinnar.
KR er spáð 4. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. KR-ingar björguðu sér frá falli úr Bestu deildinni á síðasta tímabili með því að vinna síðustu tvo leiki sína. Þeir enduðu í 10. sæti en Halldór telur að KR muni gera mun betur í ár. „Mér líst vel á KR-liðið. Ef einhver hafði áhyggjur af því eftir síðasta tímabil að KR ætlaði að fara eitthvað að slaka á og vera varfærnir held ég að þetta undirbúningstímabil hafi sýnt að það verður nú ekki raunin. KR hefur klárlega verið það lið í vetur sem hefur verið skemmtilegast að horfa á. Þeir hafa spilað marga leiki mjög vel og kafla í leikjum virkilega vel og verið mjög skemmtilegir,“ sagði Halldór er hann var beðinn um rýna í lið KR. Klippa: Besta-spáin 2026 - 4. sæti „Við þurfum bara að njóta þess að KR-ingar séu það sem þeir eru. Þeir eru frábærir sóknarlega, með flæðandi sóknarleik og sækja á mjög mörgum mönnum. En þegar þú sækir á mjög mörgum mönnum og verstu kannski stundum á fáum. KR verða þannig. Þeir verða mjög sterkir sóknarlega og á deginum sínum frábærir og svo verða þeir aðeins opnir varnarlega þess á milli og það þarf bara að taka þeim þannig. En ég held að ég hafi engar áhyggjur af því að þeir verði í neinni fallbaráttu aftur eða neitt svoleiðis. Þeir hafa verið í neðri hlutanum síðustu tvö ár en ég hugsa að þeir berjist um efri hlutann og vonandi jafnvel Evrópusæti. Það verður mjög gaman að horfa á KR-ingana.“ Klárlega komnir lengra Halldór segir ýmislegt benda til þess að leikmenn KR séu lengra á veg komnir með að meðtaka áherslur Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara liðsins. „Já, mér finnst það. Án þess þó að gefa eftir eða vera eitthvað varnarsinnaðri eru ákveðnir hlutir sem þeir hafa tekið á. Föstu leikatriðin fóru mjög illa með þá í fyrra og bara ef þeir hefðu varist föstum leikatriðum betur hefðu þeir aldrei verið í fallbaráttu,“ sagði Halldór. „Þannig að þeir þurfa bara aðeins að lagfæra og bregðast við og halda í stílinn og þá held ég strax að liðið verði aðeins stöðugra. Þeir eru klárlega komnir lengra og þurfa örugglega smá tíma til að komast ennþá lengra. Þannig að ég vona bara að það verði mikil þolinmæði fyrir því sem þeir eru að gera og að menn njóti þess að sjá þá spila.“ KR tekur á móti Keflavík í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla KR Mest lesið Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Fótbolti Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn „Þegar það rignir þá hellirignir“ Fótbolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Golf Fleiri fréttir „Ísland breytti lífi mínu“ Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Sjá meira