Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Samúel Karl Ólason skrifar 31. mars 2026 15:50 Tyler Robinson í dómsal fyrr í mánuðinum. AP/Bethany Baker, Salt Lake Tribune Lögmenn mannsins sem grunaður er um að hafa skotið Charlie Kirk til bana hafa beðið um að fyrirtöku í málinu gegn honum verði frestað um hálft ár. Segjast þeir þurfa tíma til að fara betur yfir sönnunargögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á rifflinum sem talinn er hafa verið notaður.
Þá halda þeir því einnig fram að rannsakendum hafi ekki tekist að staðfesta með afgerandi hætti að byssukúlan sem banaði Kirk hafi komið úr byssunni sem talið er að hafi verið notuð. Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmála Bandaríkjanna, var skotinn til bana á viðburði í háskóla í Utah í Bandaríkjunum í september í fyrra. Tyler Robinson var svo handtekinn og ákærður fyrir að hafa myrt Kirk, sem tengdist fjölskyldu Donalds Trump, forseta, vinaböndum. Talið er að Robinson hafi myrt Kirk vegna pólitískra skoðana hans og ætla saksóknarar að fara fram á dauðarefsingu. Í samtali við sambýliskonu sína, trans konu sem hann var í sambandi með, játaði Robinson að hafa myrt Kirk, samkvæmt ákærunum gegn honum. Í frétt NBC News segir að lögmenn Robinsons segi í frestunarbeiðni til dómara að þeir hafi fengið bráðabirgðaskýrslu frá rannsakendum löggæslustofnunarinnar ATF þar sem fram komi að greining hafi ekki getað staðfest að byssukúlan sem banaði Kirk hafi komið úr gömlum þýskum riffli sem Robinson er talinn hafa skotið Kirk með. Umrædd greining ku snúa að því að bera saman rákir á byssukúlunni við rákir á aðrar kúlur sem skotið hefur verið úr sömu byssu. Niðurstöður greiningar ATF hafa ekki verið opinberaðar og þá liggja ekki fyrir upplýsingar um ástand kúlunnar. Það að ekki hafi tekist að sannreyna að kúlan hafi komið úr umræddri byssu með greiningu á rákum þýðir ekki að kúlunni hafi ekki verið skotið úr byssunni. Blýkúlur afmyndast oftar en ekki verulega við að hæfa eitthvað og brotna jafnvel upp í fjölmörg brot sem getur gert greiningu erfiða eða ómögulega. Önnur greining mun vera yfirstandandi hjá Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI). Lögmenn Robinsons segjast mögulega vilja nota þessar upplýsingar til að hreinsa skjólstæðing þeirra af sök þegar fyrirtakan fer fram. Þeir segjast einnig þurfa tíma til að fara yfir gögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á byssunni og skotfærum úr henni. Saksóknarar segja að lífsýni úr Robinson hafi fundist á byssunni og á skothylkjum sem fundust með henni. Verjendurnir segja þó að lífsýni úr fleirum hafi fundist á byssunni og að þau þurfi frekari tíma til greiningar.
Bandaríkin Morðið á Charlie Kirk Erlend sakamál Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og fleiri Repúblikanar munu síðar í dag heiðra minningu hægrisinnaða áhrifavaldsins Charlie Kirk. Minningarathöfn fyrir Kirk fer fram á State Farm íþróttavellinum í Arizona og er búist við því að þúsundir muni mæta til að heiðra minningu hans. 21. september 2025 11:37 Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Bandaríkjaforseti sætir harðri gagnrýni fyrir að fagna andláti fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar sem stýrði rannsókn á tengslum forsetaframboðs hans við Rússa árið 2016. 23. mars 2026 14:33 Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að andúð leikstjórans Robs Reiner á sér hafi leitt til þess að hann hafi verið myrtur. Ekkert liggur fyrir um tilefni þess að Reiner og Michele eiginkona hans voru myrt en fregnir hafa borist af því að sonur þeirra hafi verið handtekin og sé grunaður um að hafa framið morðin. 15. desember 2025 15:21 Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Tyler Robinson, 22 ára, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða íhaldssama aðgerðasinnan Charlie Kirk í september síðastliðnum, mætti fyrir dómara í gær. 12. desember 2025 08:27 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira
Trump og Vance ávarpa minningarathöfn Charlie Kirk Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og fleiri Repúblikanar munu síðar í dag heiðra minningu hægrisinnaða áhrifavaldsins Charlie Kirk. Minningarathöfn fyrir Kirk fer fram á State Farm íþróttavellinum í Arizona og er búist við því að þúsundir muni mæta til að heiðra minningu hans. 21. september 2025 11:37
Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Bandaríkjaforseti sætir harðri gagnrýni fyrir að fagna andláti fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar sem stýrði rannsókn á tengslum forsetaframboðs hans við Rússa árið 2016. 23. mars 2026 14:33
Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að andúð leikstjórans Robs Reiner á sér hafi leitt til þess að hann hafi verið myrtur. Ekkert liggur fyrir um tilefni þess að Reiner og Michele eiginkona hans voru myrt en fregnir hafa borist af því að sonur þeirra hafi verið handtekin og sé grunaður um að hafa framið morðin. 15. desember 2025 15:21
Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Tyler Robinson, 22 ára, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða íhaldssama aðgerðasinnan Charlie Kirk í september síðastliðnum, mætti fyrir dómara í gær. 12. desember 2025 08:27