Ertu íslenskuvinur? Védís Ragnheiðardóttir skrifar 29. mars 2026 21:00 „Bonen?“ ónei, hvað þýðir það? „Do you want a receipt?“ fjárans… „Ja tak“ „Here you go.“ „Tak.“ Dæmigert. Andartakshik yfir ókunnuglegu orði var nóg til að ungi kassastarfsmaðurinn skipti á núll einni yfir á alþjóðatungumálið, jafnvel þótt samskipti okkar þangað til hefðu alfarið farið fram á dönsku. Ég labbaði súr úr Netto. Súr út í sjálfa mig að þekkja ekki orðið. Súr út í starfsmanninn fyrir að grípa strax til enskunnar. Er ég rölti í átt að Metroinu gat ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig ég ætti að ná fullu valdi á dönskunni ef ég fengi aldrei tækifæri til að æfa mig. Ef ensku yrði slengt framan í mig ef það svo lítið sem örlaði fyrir spurningarmerki í augum mér. Mér varð líka hugsað til fólks með annan tungumálabakgrunn en ég, fólks sem er ekki í þeirri forréttindastöðu að hafa lært dönsku í íslenskum grunnskóla. Ef ég – sem varði kvöldunum í að hlusta á danskar hljóðbækur – fengi ekki einu sinni að nota dönsku í Netto, hver var þá þeirra séns að brjótast inn í þetta málsamfélag? Síðustu þrjú ár hef ég kennt hagnýta íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Ég hef kennt tugum nemenda sem eru komnir í skólann með það að markmiði að öðlast A2-færni í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum (CEFR). Ekki skortir áhugann hjá nemendum. Þau vilja læra málið til að nota það í daglegum samskiptum á vinnustaðnum, í verslunum, þegar þau sækja sér þjónustu eða í foreldraviðtölum í skólum barna sinna. En of oft hafa íslenskumælandi viðmælendur þeirra ekki tíma, nennu eða vilja til að eiga samskipti á ófullkominni íslensku, gjóa augum á klukkuna – dæsa jafnvel. Eins og danski kassastarfsmaðurinn grípa þau í enskuna, jafnvel þegar hvorugur þátttakenda í samtalinu hefur hana að móðurmáli. Enskan er alltumlykjandi og því verður ekki neitað að það er freistandi og þægilegt að grípa til hennar. Og stundum er það nauðsynlegt. Sé íslenskuneminn á A2-stigi samkvæmt CEFR er ekki hægt að ætlast til að hann geti rætt um flókna hluti. En hann á að geta bjargað sér í kunnuglegum aðstæðum, svo sem á kaffistofunni og í einföldum þjónustusamtölum, og við sem erum íslenskumælandi ættum að gera okkar besta til að styðja hann í sinni viðleitni að læra málið. Og muna að engum er greiði gerður með of mikilli enskunotkun. Líkja má því að læra tungumál við það að læra að hjóla og enskunotkuninni þá við notkun hjálpardekkja. Þegar ég lærði að hjóla var hjálpardekkjanotkun almenn en við vitum í dag að hjálpardekk eru ekki alltaf besta leiðin til að kenna börnum að hjóla. Þó að þau virðist þægileg lausn geta þau í raun unnið gegn markmiðinu. Í fyrsta lagi hamla þau jafnvægisþjálfun þeirri sem er grundvallaratriði fyrir hvern þann sem hyggst hjóla. Með hjálpardekkjum riðar barnið ekki til og fær þar með ekki tækifæri til að þjálfa jafnvægisvöðvana. Hið sama á við um íslenskunemann. Enginn lærir tungumál ef hann fær ekki að þjálfa sig, missa aðeins jafnvægið, detta jafnvel. Í öðru lagi geta hjálpardekk skapað falskt öryggi. Barnið venst stuðningnum og treystir ekki eigin getu þegar stuðningurinn er ekki lengur fyrir hendi. Loks þegar hjálpardekkin eru tekin af verður skrefið stórt og oft ógnvekjandi. Í tungumálanámi gerist hið sama. Ef sífellt er gripið til enskunnar byggist ekki upp það öryggi sem þarf til að nota íslenskuna sjálfstætt. Þetta leiðir til þess að þegar fólk þarf allt í einu að tala íslensku verður þröskuldurinn hærri, hikstið meira og líkurnar á að gefast upp aukast. Ef við grípum alltaf inn í með enskuna um leið og við skynjum hið minnsta hik erum við í raun að setja hjálpardekkin undir. Við erum að taka af fólki tækifærið til að æfa jafnvægið – til að leita að orðunum, klára setninguna, finna taktinn í málinu. Já, það tekur lengri tíma. Já, það er stundum óþægilegt. En með því móti verðum við stuðningur við nám í stað þess að vera hindrun. Þegar ég gekk út úr Netto var ég pirruð – pirruð út í sjálfa mig fyrir að skilja ekki eitt lítið orð, en líka pirruð yfir því að hafa ekki fengið tækifæri til að klára samskiptin á dönsku. Þetta andartakshik var nóg til að hjálpardekkin væru sett undir samstundis. En ef við viljum að fólk nái tökum á íslensku þurfum við að þola þessi augnablik, þar sem setningin hangir í lausu lofti, þar sem leitað er að orðum, þar sem jafnvægið er ekki alveg komið. Við verðum öll að vera íslenskuvinir, reiðubúin að hlusta á íslensku með hreim, aðlaga orðaforða okkar að viðmælanda og muna að enginn lærir tungumál án þess að gera mistök. Höfundur er námsleiðarformaður Íslensku sem annað mál, hagnýt nám við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar