Meira er ekki alltaf betra í skólastarfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 28. mars 2026 14:32 Það er eitthvað afskaplega undarlegt við umræðuna um íslenska skóla þessa dagana, undarlegra en oft áður. Ráðherra menntamála vill meina að lausnin sé einföld, fleiri skóladagar, fleiri kennslustundir og þá muni árangurinn batna. Þetta er ekki aðeins ofur einföldun, þetta er röng nálgun sem byggir á vanþekkingu á skólastarfi og það er sárt fyrir okkur skólafólk sem viljum gjarnan hafa öfluga og faglega forystu í ráðuneytinu sem stendur okkur næst. Íslenskir skólar starfa samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og þar er markmiðið ekki eingöngu að ná árangri í bóklegum greinum heldur að mennta ólíka einstaklinga á fjölbreyttan hátt. Þar skipta sköpun, félagsfærni, lýðræði, vellíðan og sjálfstæði nemenda jafn miklu máli og lesskilningur og stærðfræði. Þessi sýn er ítrekuð í Menntastefnu Íslands til 2030. Þegar ráðherra talar um að íslensk börn séu of stutt í skóla og þráast við töluna 170 gleymist eitt örlítið grundvallaratriði. Skóladagar eru samkvæmt grunnskólalögum 180 talsins og þó hluti þeirra sé kallaður „uppbrotsdagar“ fer fram raunverulegt nám þá daga líka. Vettvangsferðir, samþætt verkefni, list- og verkgreinar og útinám er ekki niðurfelling á námi heldur raunverulegt nám sem samræmist bæði námskrá og alþjóðlegri kennslufræði. Það mætti vissulega skoða það að fjölga kennsludögum en gerum það þá á réttum forsendum, út frá réttum upplýsingum og á faglegan ígrundaðan hátt með gæði skólastarfs að leiðarljósi. Tölur sýna einnig að meiri tími í skóla er ekki sjálfkrafa lykillinn að betri árangri. Það sem ræður árangri eru gæði kennslu, tengsl nemenda við kennara og skólamenning. Þar hefur Ísland styrkleika sem sjást ekki í einföldum samanburði. Niðurstöður úr Skólapúlsinum og Íslensku æskulýðsrannsókninni sýna að íslensk börn upplifa almennt góð tengsl, stuðning og þátttöku og líður flestum vel í skólanum sínum. Slíkir þættir eru sannarlega ekki aukaatriði heldur forsenda náms og farsældar. Alþjóðleg gögn, þar á meðal PISA, benda einnig til þess að íslensk ungmenni standi tiltölulega sterkt í skapandi hugsun og samskiptum við kennara, sem eru lykilhæfni í samfélagi framtíðarinnar. Þá er einnig villandi að tala um „of háan kostnað“ þar sem Ísland er 400 þúsund manna dreifbýlt samfélag með marga litla skóla sem eðlilega eru töluvert dýrari í rekstri en stærri einingar. En það tryggir líka jafnt aðgengi að menntun, byggðafestu og félagslegt réttlæti sem er meðvituð ákvörðun og stefna stjórnvalda. Ákall um betri umræðu um skólastarf Áskoranir eru sannarlega til staðar og þær þarf að taka föstum tökum. En lausnin er að mínu mati ekki að telja skóladaga. Lausnin felst í markvissum aðgerðum sem snúa að því að efla og styrkja núverandi skólastarf líkt og skólafólk hefur ítrekað kallað eftir og lagt framtillögur að lausnum. Ef við ætlum að bæta skólastarf verðum við að byggja á réttum upplýsingum og fara með rétt mál! Höfundur er menntunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar