Fall Vals í Afríku ætlar að reynast dýrkeypt Þórarinn Þórarinsson skrifar 27. mars 2026 14:34 Fótbrotinn og févana komst Valur heim með hjálp góðs fólks en fallið í Naíróbi ætlar að reynast honum dýrara en útlit var fyrir í upphafi. Mynd/Aðsend „Það sem ég hélt að væri tognun reyndist vera þvagsýrugigt sem leyndi fótbroti sem þróaðist út í æðatappa,“ skrifaði Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur með meiru þegar hann sendi út hjálparbeiðni á Facebook í dag.
Valur, sem fótbrotnaði í Kenía í ársbyrjun og komst til Íslands með góðra Facebook-vina hjálp, upplýsir í dag að enn hafi syrt í álinn eftir að hann kom heim fyrr í þessum mánuði.Nú sé aftur runninn upp „þessi leiðinlegasti tími mánaðar þegar reikningarnir koma inn en engin laun.“ Ekkert nýtt svosem og ekkert megi út af bregða til þess hann nái endum saman.„Nú hefur hins vegar brugðið útaf,“ segir hann, munn verr leikinn eftir ófarirnar í Afríku en áður var talið. Fótbrotið leyndist bak við þvagsýrugigt nógu lengi til þess að blóðtappi myndaðist. „Svo kom í ljós að ég var rifbeinsbrotinn líka en maður kveinkar sér nú ekki útaf því. Frekari rannsóknir munu sennilega leiða í ljós hvers vegna ég er enn að drepast í löppinni þótt beinið eigi að vera gróið.“ Eins og áður hefur komið fram var Valur við skriftir í Naíróbí í Kenía í byrjun árs þegar hann fótbrotnaði við fall ofan í vatnsbrunn. Heimkominn hefur hann síðan komist að því að það er dýrara en hann grunaði að vera sjúklingur á Íslandi.„30.000 fyrir Röntgen í Dómus, svo 30.000 fyrir ómskoðun og aftur 30.000 fyrir frekari rannsóknir, 4.000 fyrir leigubíl á slysó og 9.000 fyrir skoðun þar (ómskoðarinn keyrði mig heim), 30.000 fyrir blóðþynningarlyf. Ég á enn 400.000 frá ykkur síðan síðast en reikningarnir hljóða upp á 500.000 (meðal annars fyrir flugfarinu heim). Hélt að þetta myndi sleppa en þá munar einmitt um sjúkrakostnaðinn,“ skrifar hann tilneyddur til þess að biðja um frekari aðstoð á Facebook:
Kenía Menning Íslendingar erlendis Heilbrigðismál Mest lesið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Sjá meira