Aumingja tryggingafélögin Agnar Þór Guðmundsson og Haukur Freyr Axelsson skrifa 27. mars 2026 08:00 Harmakvein berast nú innan úr herbúðum VÍS trygginga hf. Á föstudaginn síðasta birtist á Vísi.is viðtal við framkvæmdastjóra trygginga og tjóna hjá félaginu, Reyni Bjarna Egilsson. Í viðtalinu viðraði hann þá skoðun sína að breyta þurfi skaðabótalögum þar sem það sé bæði ósanngjarnt og of dýrt að fólk sem lendi í slysum og verði fyrir örorku sem er minni en 15% fái bætur. Þessi „skekkja“ í lögunum sé að kosta samfélagið milljarða og verði henni breytt gætu iðgjöld mögulega lækkað í framtíðinni. Sami maður hefur sagt opinberlega að tjónþolar sem eru metnir með minna en 15% örorku séu að fá „lottóvinning“ þegar þeir fá greiddar bætur frá tryggingafélögum. Blessunarlega snúa flestir tjónþolar til baka á vinnumarkaðinn þrátt fyrir að búa við skerta vinnugetu það sem eftir er vegna afleiðinga slysa, en viðtal Reynis Bjarna verður ekki skilið öðruvísi en svo að hann telji að einungis þeir sem geta ekki snúið til baka á vinnumarkað eftir slys eigi að fá greiddar bætur. Samkvæmt ársuppgjöri Skaga hf. frá 18. febrúar síðastliðnum var árið 2025 eitt það besta í sögu tryggingareksturs VÍS. Hagnaður af vátryggingastarfsemi tvöfaldaðist og endaði í 2,9 milljörðum króna. Í ársuppgjörinu segir berum orðum: „Frábært ár er að baki í tryggingarekstri VÍS, en afkoma félagsins af tryggingarekstri er sú besta frá stofnun og tvöfaldaðist á milli ára. Kraftmikill tekjuvöxtur hélt áfram en tekjur af vátryggingasamningum jukust um 9,5% á milli ára, en þar af jukust tekjur líf- og sjúkdómatryggingum um 12,2%. Kostnaðarhlutfall hélt áfram að lækka á árinu, úr 19,1% í 18,1%. Niðurstaða ársins er samsett hlutfall 90,7% og afkoma tryggingarekstrar tæpir þrír milljarðar króna sem er, sem fyrr segir, besta afkoma af vátryggingum í sögu félagsins.“ Skyldi engan undra að svigrúm til lækkunar á iðgjöldum sé ekki fyrir hendi þegar staða félagsins er svo bág. Svo því sé haldið til haga hafa tryggingafélögin sárasjaldan, varla svo elstu menn muni, séð ástæðu til að lækka iðgjöld og það hefur ekkert með hlutfall tjóna að gera. Þannig má t.d. sjá af rekstrarreikningum VÍS hf. að iðgjöld lækkuðu ekki á covid tímabilinu þrátt fyrir að tjónum (og bótagreiðslum) hafi fækkað vegna skerðingar á athafnafrelsi fólks. Það er rétt sem fram kemur í viðtalinu við Reyni að frumvarp til breytinga á skaðabótalögum liggur þegar fyrir. Eiríkur Jónsson, fyrrverandi prófessor í lögum og núverandi dómari við Landsrétt, útbjó frumvarp fyrir dómsmálaráðuneytið árið 2017. Kveikjan að þessari vinnu var skekkja í margfeldisstuðlum laganna sem valda því að lágmarks- og hámarkslaunaviðmið þeirra hafa ekki fylgt launaþróun í landinu. Þetta er ástæða þess að hluti einstaklinga sem verður fyrir slysum, þar á meðal ungt fólk, fær mun lægri bætur en það ætti að fá. Löggjafinn virðist engan áhuga hafa haft á því að bæta stöðu fólks sem hlýtur varanlegt líkamstjón því þetta frumvarp dagaði uppi í þingnefnd. Markmið skaðabótalaga er að sá sem verður fyrir varanlegu tjóni fái fullar bætur fyrir tjón sitt og sé eins settur og hann var fyrir. Þessu markmiði verður ekki náð nema ofangreind skekkja laganna sé leiðrétt, eins og margoft hefur verið fjallað um á opinberum vettvangi. Markmið tryggingafélaganna virðist hins vegar vera annað en það að greiða fólki fullar bætur fyrir tjón sitt. Ef hugmyndir þeirra yrðu að lögum myndi það þýða að bætur til þeirra sem hljóta varanlegt líkamstjón sem metið er minna en 15% yrði óbætt. Þessir einstaklingar yrðu þá einfaldlega að taka á sig tjónið þrátt fyrir að hafa sannanlega orðið fyrir varanlegu líkamstjóni og þrátt fyrir að hafa greitt sín iðgjöld til tryggingafélaganna í áraraðir. En við skulum ekki gagnrýna tryggingafélögin fyrir að innheimta svona há iðgjöld. Svigrúm til lækkunar iðgjalda fæst jú ekki nema með skerðingu bóta til neytenda! Höfundar eru lögmenn hjá Fulltingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tryggingar Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar