Hæstánægður á Íslandi þrátt fyrir neglu í andlitið Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 14:33 Mikael Appelgren reyndist strákunum okkar ansi erfiður í leikjunum tveimur hér á landi. vísir/Anton Leikmenn sænska handboltalandsliðsins virðast hafa notið Íslandsfarar sinnar í botn enda fögnuðu þeir tveimur sigrum í vináttulandsleikjunum við strákana okkar.
Sá sem átti kannski stærstan þátt í sigrunum tveimur var markvörðurinn frábæri Mikael Appelgren sem var með 46% markvörslu í fyrri leiknum og varði svo heil 26 skot í seinni leiknum (52%). Appelgren birti skemmtilega færslu á Instagram eftir ferðina með myndum úr fyrri leiknum í N1-höllinni á Hlíðarenda, úr smiðju ljósmyndarans Hafliða Breiðfjörð. Þar má sjá þá Viggó Kristjánsson og Appelgren, sem og annan af dómurum leiksins, alla skælbrosandi jafnvel þó að ekki virðist í fyrstu tilefni til þess. Viggó hafði nefnilega skotið boltanum í andlit Appelgrens og dómarinn neyðst til að veita Seltirningnum tveggja mínútna brottvísun. View this post on Instagram A post shared by Mikael Appelgren (@mikaelalfappelgren) „Sjaldgæf stund. Einn fær skot í andlitið, einn veitir refsingu, einn fær tvær mínútur, EN allir brosa. Frábær vika á Íslandi með landsliðinu,“ skrifaði Appelgren með myndinni á Instagram. Viggó skoraði öll fimm mörk sín í leiknum á Hlíðarenda úr vítaköstum en öll þrjú skot hans úr opnum leik voru varin. Hann var svo langmarkahæstur í seinni leiknum í Kaplakrika með sjö mörk, þar af þrjú úr vítum, úr alls tólf skotum.
Landslið karla í handbolta Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira