Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Birgir Olgeirsson skrifar 26. mars 2026 12:52 Breytingarnar ná til svæðanna Suðurlandsbrautar 18–28 og Ármúla 15–27, Suðurlandsbrautar 30–34 og Ármúla 29–31, svæðisins við Suðurlandsbraut, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla, auk Sigtúnsreits. Vilhelm Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Í þremur þeirra er gert ráð fyrir að nákvæm útfærsla bílastæða verði ekki lengur sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin síðar.
Tillögurnar voru samþykktar með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar sat hjá. Málunum var vísað til borgarráðs. Bílastæðin ekki lengur sýnd með sama hætti Breytingarnar ná til svæðanna Suðurlandsbrautar 18–28 og Ármúla 15–27, Suðurlandsbrautar 30–34 og Ármúla 29–31, svæðisins við Suðurlandsbraut, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla, auk Sigtúnsreits. Í þremur fyrri tillögunum felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti eiga gildandi skilmálar að haldast óbreyttir. Segja gagnsæi skert Við þetta er minnihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði ósáttur. Í bókun Sjálfstæðisflokksins segir að þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggi fyrir að þær feli í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Þá segir flokkurinn að með því að taka bílastæði út af uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig sé verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Sjálfstæðisflokkurinn varar við því að slíkt geti haft neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks á svæðinu. Framsókn segir ekki hlustað á rekstraraðila Fulltrúi Framsóknarflokksins gagnrýnir málið einnig harðlega. Í bókun flokksins segir að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut og að breytingarnar geti valdið aukinni töf á umferð með ruðningsáhrifum á samgöngukerfið í heild. Þá segir Framsókn að framkvæmdirnar muni hafa gríðarleg áhrif á fyrirtæki, þúsundir starfsmanna og viðskiptavini sem fari um svæðið á hverjum degi. Flokkurinn segist styðja forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telur að útfæra verði Borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt. Sigtúnsreitur sé einnig undir Fjórða tillagan sneri að Sigtúnsreit. Þar felst breytingin í samræmingu skipulagsmarka við nýja afmörkun deiliskipulags Suðurlandsbrautar, breytingu á lóðarmörkum Engjateigs 10A og lokun götutengingar frá Suðurlandsbraut að Engjateigi. Sú breyting felur samkvæmt fundargerð ekki í sér breytingu á byggingarmagni eða öðrum gildandi skilmálum.
Skipulag Reykjavík Borgarlína Borgarstjórn Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Sjá meira