Vill halda áfram sem forsætisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2026 08:06 Hin 48 ára Mette Frederiksen hefur gegnt embætti forsætisráðherra Danmerkur frá árinu 2019. AP Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist vilja halda áfram sem forsætisráðherra landsins, þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað tólf þingsætum í þingkosningunum sem fram fóru í gær. Þetta sagði Frederiksen þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína í nótt eftir að úrslit lágu fyrir. „Ég er reiðubúin að axla þá ábyrgð að vera forsætisráðherra Danmerkur.“ Ekki endilega slæm staða Jafnaðarmanna Segja má að upp sé komin nokkuð snúin staða þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn í Danmörku, en þrátt fyrir að niðurstaðan sé sú versta fyrir Jafnaðarmenn í rúma öld þá eru nokkrar ástæður fyrir því að svo kunni að fara að flokkurinn muni áfram leiða ríkisstjórn. Í fyrsta lagi er flokkurinn enn stærstur á þingi og hlaut tíu prósentustigum meira fylgi en sá flokkur sem hlaut næstflest atkvæði. Í öðru lagi náði bláa blokkin ekki meirihluta á þingi og í þriðja lagi eru nokkrar leiðir mögulegar fyrir Frederiksen til að mynda ríkisstjórn. Síðast má svo nefna að staða heimsmála hafi þau áhrif að ríkur vilji er fyrir því að mynda ríkisstjórn sem fyrst. Útilokar samstarf Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, útilokaði áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Jafnaðarmönnum þegar hann ræddi við fjölmiðla í nótt, en flokkurinn hlaut sömuleiðis sína verstu niðurstöðu í þingkosningunum í langan tíma. Þegar búið var að telja öll atkvæði í nótt lá fyrir að rauða blokkin í dönskum stjórnmálum, með Jafnaðarmannaflokk Frederiksen í broddi fylkingar, hafði tryggt sér 84 þingmenn. Bláa blokkin tryggði sér 77 þingmenn og Moderaterne, flokkur utanríkisráðherrans Lars Løkke Rasmussen, tryggði sér fjórtán þingmenn. Níutíu þingmenn þarf til að vera með meirihluta. Niðurstaða dönsku þingkosninganna 2026 Jafnaðarmannaflokkurinn 21,9 prósent (-5,6 prósent). 38 þingmenn Socialistisk Folkeparti 11,6 prósent (+3,3 prósent). 20 þingmenn Venstre 10,1 prósent (-3,2 prósent). 18 þingmenn Liberal Alliance 9,4 prósent (+1,5 prósent). 16 þingmenn Dansk Folkeparti 9,1 prósent (+6,5 prósent). 16 þingmenn Moderaterne 7,7 prósent (-1,6 prósent). 14 þingmenn Konservative 7,6 prósent (+2,1 prósent). 13 þingmenn Enhedslisten 6,3 prósent (+1,2 prósent). 11 þingmenn Radikale 5,8 prósent (2,0 prósent). 10 þingmenn Danmerkurdemókratar 5,8 prósent (-2,3 prósent). 10 þingmenn Alternativet 2,6 prósent (-0,7 prósent). 5 þingmenn Borgernes Parti 2,1 prósent (+2,1 prósent). 4 þingmenn „Komið niður og leikið við okkur“ Rasmussen og Moderatene hafa lýst því yfir að þeir standi utan bandalaga og hafa því mikið að segja um hvernig stjórn verður mynduð. Rasmussen sagðist í nótt vera reiðubúinn til viðræðna og beindi þar orðum sínum til annarra flokksleiðtoga. Hann vildi sjálfur ekki útiloka áframhaldandi stjórn með Jafnaðarmönnum og Venstre. „Hættið þú með þetta markalínutal. Komið niður. Komið niður til okkar. Þið standið bara þarna úti við hornfánann. Við erum á miðjunni. Komið niður og leikið við okkur. Við erum tilbúin.“ Tveir möguleikar eru líklegastir Christine Cordsen, fréttaskýrandi DR, segir að tvær leiðir séu nú líklegastar við myndun nýrrar stjórnar. Sú fyrsta er breið miðjustjórn þar sem Jafnaðarmannaflokkurinn, Socialistisk Folkeparti, Radikale Venstre og Det Konservative Folkeparti mynda saman stjórn. Þessir flokkar eru saman með þá níutíu þingmenn sem þarf til að mynda meirihlutastjórn og væri ekki þörf á miklum málamiðlunum. Umræddir flokkar höfðu í kosningabaráttunni heldur ekki útilokað samstarf við hina. Hinn líklegi möguleikinn þegar kemur að stjórnarmyndun segir Cordsen vera ríkisstjórn Jafnaðarmanna, Socialistisk Folkeparti, Moderaterne og Radikale Venstre. Slík stjórn yrði þó minnihlutastjórn sem myndi þurfa að treysta á stuðning Enhedslisten, sem er þó nokkuð fjarri Moderatene þegar kemur að málefnum. Danmörk Þingkosningar í Danmörku Tengdar fréttir Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen. 24. mars 2026 23:34 Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. 24. mars 2026 19:08 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira
Þetta sagði Frederiksen þegar hún ávarpaði stuðningsmenn sína í nótt eftir að úrslit lágu fyrir. „Ég er reiðubúin að axla þá ábyrgð að vera forsætisráðherra Danmerkur.“ Ekki endilega slæm staða Jafnaðarmanna Segja má að upp sé komin nokkuð snúin staða þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn í Danmörku, en þrátt fyrir að niðurstaðan sé sú versta fyrir Jafnaðarmenn í rúma öld þá eru nokkrar ástæður fyrir því að svo kunni að fara að flokkurinn muni áfram leiða ríkisstjórn. Í fyrsta lagi er flokkurinn enn stærstur á þingi og hlaut tíu prósentustigum meira fylgi en sá flokkur sem hlaut næstflest atkvæði. Í öðru lagi náði bláa blokkin ekki meirihluta á þingi og í þriðja lagi eru nokkrar leiðir mögulegar fyrir Frederiksen til að mynda ríkisstjórn. Síðast má svo nefna að staða heimsmála hafi þau áhrif að ríkur vilji er fyrir því að mynda ríkisstjórn sem fyrst. Útilokar samstarf Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægriflokksins Venstre, útilokaði áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Jafnaðarmönnum þegar hann ræddi við fjölmiðla í nótt, en flokkurinn hlaut sömuleiðis sína verstu niðurstöðu í þingkosningunum í langan tíma. Þegar búið var að telja öll atkvæði í nótt lá fyrir að rauða blokkin í dönskum stjórnmálum, með Jafnaðarmannaflokk Frederiksen í broddi fylkingar, hafði tryggt sér 84 þingmenn. Bláa blokkin tryggði sér 77 þingmenn og Moderaterne, flokkur utanríkisráðherrans Lars Løkke Rasmussen, tryggði sér fjórtán þingmenn. Níutíu þingmenn þarf til að vera með meirihluta. Niðurstaða dönsku þingkosninganna 2026 Jafnaðarmannaflokkurinn 21,9 prósent (-5,6 prósent). 38 þingmenn Socialistisk Folkeparti 11,6 prósent (+3,3 prósent). 20 þingmenn Venstre 10,1 prósent (-3,2 prósent). 18 þingmenn Liberal Alliance 9,4 prósent (+1,5 prósent). 16 þingmenn Dansk Folkeparti 9,1 prósent (+6,5 prósent). 16 þingmenn Moderaterne 7,7 prósent (-1,6 prósent). 14 þingmenn Konservative 7,6 prósent (+2,1 prósent). 13 þingmenn Enhedslisten 6,3 prósent (+1,2 prósent). 11 þingmenn Radikale 5,8 prósent (2,0 prósent). 10 þingmenn Danmerkurdemókratar 5,8 prósent (-2,3 prósent). 10 þingmenn Alternativet 2,6 prósent (-0,7 prósent). 5 þingmenn Borgernes Parti 2,1 prósent (+2,1 prósent). 4 þingmenn „Komið niður og leikið við okkur“ Rasmussen og Moderatene hafa lýst því yfir að þeir standi utan bandalaga og hafa því mikið að segja um hvernig stjórn verður mynduð. Rasmussen sagðist í nótt vera reiðubúinn til viðræðna og beindi þar orðum sínum til annarra flokksleiðtoga. Hann vildi sjálfur ekki útiloka áframhaldandi stjórn með Jafnaðarmönnum og Venstre. „Hættið þú með þetta markalínutal. Komið niður. Komið niður til okkar. Þið standið bara þarna úti við hornfánann. Við erum á miðjunni. Komið niður og leikið við okkur. Við erum tilbúin.“ Tveir möguleikar eru líklegastir Christine Cordsen, fréttaskýrandi DR, segir að tvær leiðir séu nú líklegastar við myndun nýrrar stjórnar. Sú fyrsta er breið miðjustjórn þar sem Jafnaðarmannaflokkurinn, Socialistisk Folkeparti, Radikale Venstre og Det Konservative Folkeparti mynda saman stjórn. Þessir flokkar eru saman með þá níutíu þingmenn sem þarf til að mynda meirihlutastjórn og væri ekki þörf á miklum málamiðlunum. Umræddir flokkar höfðu í kosningabaráttunni heldur ekki útilokað samstarf við hina. Hinn líklegi möguleikinn þegar kemur að stjórnarmyndun segir Cordsen vera ríkisstjórn Jafnaðarmanna, Socialistisk Folkeparti, Moderaterne og Radikale Venstre. Slík stjórn yrði þó minnihlutastjórn sem myndi þurfa að treysta á stuðning Enhedslisten, sem er þó nokkuð fjarri Moderatene þegar kemur að málefnum.
Niðurstaða dönsku þingkosninganna 2026 Jafnaðarmannaflokkurinn 21,9 prósent (-5,6 prósent). 38 þingmenn Socialistisk Folkeparti 11,6 prósent (+3,3 prósent). 20 þingmenn Venstre 10,1 prósent (-3,2 prósent). 18 þingmenn Liberal Alliance 9,4 prósent (+1,5 prósent). 16 þingmenn Dansk Folkeparti 9,1 prósent (+6,5 prósent). 16 þingmenn Moderaterne 7,7 prósent (-1,6 prósent). 14 þingmenn Konservative 7,6 prósent (+2,1 prósent). 13 þingmenn Enhedslisten 6,3 prósent (+1,2 prósent). 11 þingmenn Radikale 5,8 prósent (2,0 prósent). 10 þingmenn Danmerkurdemókratar 5,8 prósent (-2,3 prósent). 10 þingmenn Alternativet 2,6 prósent (-0,7 prósent). 5 þingmenn Borgernes Parti 2,1 prósent (+2,1 prósent). 4 þingmenn
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Tengdar fréttir Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen. 24. mars 2026 23:34 Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. 24. mars 2026 19:08 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira
Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen. 24. mars 2026 23:34
Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta. 24. mars 2026 19:08