Landsbankinn hækkar einnig vexti Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2026 20:13 Vextir voru hækkaðir hjá Arion banka og Íslandsbanka fyrir helgi og nú hefur Landsbankinn fylgt á eftir. Vísir/vilhelm Forsvarsmenn Landsbankans tilkynntu í dag að vextir yrðu hækkaðir. Hækkanirnar eru á milli 0,15 upp í 0,35 prósentustig eftir því hverslags lán er um að ræða en fyrstu breytingarnar tóku gildi í dag og hinar taka gildi á föstudaginn.
Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig en það sama á við um fasta vexti til 36 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum. Fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,25 prósentustig, samkvæmt tilkynningu frá Landsbankanum. Fastir vextir til tólf mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,35 prósentustig en fastir vextir til sextíu mánaða á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,15 prósentustig. Þá hækka kjörvextir á óverðtryggðum lánum um 0,25 prósentustig og gera yfirdráttarvextir það einnig. Sjá einnig: Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Innlánavextir hækka einnig. Vextir á sparireikningum í appi hækka um 0,25 prósentustig, eins og vextir á öðrum óverðtryggðum sparireikningum. Þá hækka vextir á óverðtryggðum fastvaxtareikningum um allt að 0,35 prósentustig. Hækkanirnar koma í kjölfar þess að Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Samsvarandi vaxtahækkanir voru tilkynntar hjá Arion banka og Íslandsbanka fyrir helgi.
Fjármálafyrirtæki Verðlag Landsbankinn Fjármál heimilisins Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira