Segir óafsakanlegt að Kristófer spili ekki með landsliðinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2026 13:31 Kristófer Acox og félagar í Val sitja í 4. sæti Bónus deildar karla. vísir/diego Kristófer Acox hefur spilað vel með Val að undanförnu. Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds vonast til að sjá hann spila aftur með íslenska landsliðinu en hann hefur ekki leikið með því í tvö ár.
Kristófer var stiga- og stoðsendingahæstur í liði Vals sem sigraði Keflavík, 85-88, í næstsíðustu umferð Bónus deildar karla á fimmtudaginn. Kristófer skoraði nítján stig og tók þrettán fráköst í leiknum. „Hann er að komast í sitt gamla form og er búinn að líta ótrúlega vel út,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson í Bónus Körfuboltakvöldi. „Hugsið ykkur að eiga svona strák sem veitir okkur þetta ár eftir ár. Hann hefur gert þetta með tveimur liðum síðastliðin tíu ár. Hann er geggjaður. Ég elska þennan gæja.“ Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um Kristófer Acox Kristófer hefur ekki leikið með íslenska landsliðinu undanfarin misseri og var til að mynda ekki með því á Evrópumótinu síðasta haust. Sævar Sævarsson vonar að þeir Craig Pedersen landsliðsþjálfari grafi stríðsöxina. „Það að hann sé ekki að spila með landsliðinu er eiginlega óafsakanlegt af hálfu þjálfarateymisins. Þjálfarateymið, og að hluta til hann líka, þarf að finna einhverja leið. Ef það þýðir að einhverjir þurfi að vera aðeins minni og beygja sig aðeins undir að koma því í kring verður svo að vera,“ sagði Sævar. „Við höfum ekki efni á að vera án svona gæja. Ég biðla til þjálfaranna og Kristófers, komiði heim til mín í Keflavík og ég skal gefa ykkur viskí.“ Kristófer ræddi um ágreininginn við Pedersen í viðtali við Vísi síðasta sumar. Þar sagðist hann hafa farið á sáttafund með KKÍ sem engu hafi skilað. Pedersen hafi tjáð Kristófer að hann myndi ekki velja hann aftur í landsliðið meðan hann væri við stjórnvölinn hjá því. Kristófer segir að Pedersen hafi verið ósáttur við viðtal sem Kristófer fór í við mbl.is sumarið 2024, hann hafi ekki mætt á æfingar með landsliðinu sama sumar og ekki gefið kost á sér í landsliðsverkefni 2022. Kristófer hefur leikið 52 landsleiki. Sá síðasti kom 22. febrúar 2024 þegar Ísland sigraði Ungverjaland, 70-65. Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Landslið karla í körfubolta Tengdar fréttir „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi fögnuðu því að fá aftur Hattarmenn frá Egilsstöðum upp í Bónus-deildina, með sigri liðsins gegn Sindra í gærkvöld. Þeir hvöttu unga, íslenska leikmenn til að nýta tækifærið sem nú kemur til með að bjóðast fyrir austan. 21. mars 2026 23:02 Tilþrifin: Pungur og plakat Tilþrif umferðarinnar í Bónus deild karla þessa vikuna voru ekki af verri gerðinni. Menn fengu þá að láni nokkur úr næst efstu deild, úr stórleik næst efstu deildar á Austurlandi. 21. mars 2026 12:46 Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Sjá meira
„Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi fögnuðu því að fá aftur Hattarmenn frá Egilsstöðum upp í Bónus-deildina, með sigri liðsins gegn Sindra í gærkvöld. Þeir hvöttu unga, íslenska leikmenn til að nýta tækifærið sem nú kemur til með að bjóðast fyrir austan. 21. mars 2026 23:02
Tilþrifin: Pungur og plakat Tilþrif umferðarinnar í Bónus deild karla þessa vikuna voru ekki af verri gerðinni. Menn fengu þá að láni nokkur úr næst efstu deild, úr stórleik næst efstu deildar á Austurlandi. 21. mars 2026 12:46