Börnin okkar eiga skilið nýeldaðan mat, ekki verksmiðjumat Sigrún Elísabet Unnsteinsdóttir skrifar 23. mars 2026 06:31 Þetta er ekki spurning um hugmyndafræði. Þetta er spurning um hvort börnin okkar fái gæðamat, eldaðan á staðnum af matreiðslufólki sem þekkir þau. Í Kópavogi elda tíu af ellefu grunnskólum mat á staðnum. Í Reykjavík hefur skólum verið heimilað að útvista matreiðslu til einkaaðila og á móti er starfsfólki borgarinnar, sem sinnti áður þessari þjónustu, sagt upp. Stéttarfélagið Sameyki fordæmdi þetta fyrirkomulag í desember 2023 og kallmargir aði það einkavæðingarstefnu. Borgin neitaði því að þetta væri stefna en viðurkenndi á sama tíma að einstakir skólastjórnendur gætu útvistað matreiðslu að eigin geðþótta, án samræmdra leiðbeininga og án samþykkis foreldra. Að sjálfsögðu velja margir skólastjórnendur að útvista. Einkafyrirtækin bjóða fyrsta árið á góðum kjörum en síðan er verðið skrúfað upp þegar skólinn er orðinn háður þjónustunni. Á sama tíma hafa störf matreiðslufólks í skólum verið svo illa launuð að skólastjórnendur eiga í erfiðleikum með að halda í starfsfólk. Það er fráleitt að segja að útvistun sé ekki stefna borgarinnar þegar kjör starfsfólks eru vísvitandi látin ganga svo úr sér að einkaaðili verður eini raunhæfi valkosturinn. Þrír fjórðu borgarrekinna leikskóla útvistað Í Reykjavík eru um 86 leikskólar og 45 grunnskólar. Þar af eru 68 leikskólar og 38 grunnskólar borgarreknir en 18 leikskólar og 7 grunnskólar sjálfstætt starfandi með þjónustusamning við borgina. Allir fá opinbert fjármagn á hvern nemanda. Skólagerð Fjöldi Fjöldi sem útvistar Hlutfall Borgarreknir leikskólar 68 52 76% Borgarreknir grunnskólar 38 11 29% Sjálfstætt starfandi skólar 25 2 8% Samanburðurinn segir sína eigin sögu. Sjálfstætt starfandi skólar fá sama opinbera fjármagn en nær allir reka eigið eldhús. Aðeins 2 af 25 útvista. Ef útvistun væri raunverulega hagkvæm til lengri tíma myndu þessir skólar gera það líka. Þeir gera það ekki, vegna þess að eigið eldhús borgar sig þegar horft er lengra en til fyrsta samningsársins. Samkvæmt Opnum fjármálum Reykjavíkur hafa heildargreiðslur borgarinnar til einkaaðila fyrir skólamáltíðir nær þrefaldast á fimm árum: Ár Skólamatur ehf. Matartíminn ehf. Samtals 2019 65 m.kr. 530 m.kr. 595 m.kr. 2021 157 m.kr. 545 m.kr. 703 m.kr. 2023 589 m.kr. 799 m.kr. 1.387 m.kr. 2024 816 m.kr. 795 m.kr. 1.611 m.kr. Skólamatur ehf. var lítill aðili árið 2019 með 11% markaðshlutdeild. Á aðeins fimm árum hefur fyrirtækið tekið yfir helminginn af markaðnum. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2025 hafði borgin þegar greitt Skólamati 737 milljónir króna, sem bendir til þess að heildargreiðslur ársins muni nálgast einn milljarð króna. Peningarnir renna í vasa fjölskyldufyrirtækis Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki í eigu Axels Jónssonar og barna hans. Tekjur fyrirtækisins fóru úr tæpum 1,4 milljörðum króna árið 2021 í 3,2 milljarða árið 2024. Hagnaður ársins var 155 milljónir króna og stjórnin leggur til að greiða eigendum 90 milljónir í arð. Laun stjórnenda námu 69 milljónum króna. En heildarmyndin er enn dekkri. Skólamatur ehf. greiðir tengdu félagi, Axjon ehf., 135 milljónir króna á ári fyrir þjónustu og 137 milljónir í húsaleigu, samtals 272 milljónir króna. Að auki á Skólamatur 209 milljónir króna inni hjá Axjon sem ekki hafa verið greiddar til baka. Allt þetta er opinbert fé sem á að fara í mat fyrir börn en rennur í staðinn til sama fjölskyldunetsins í gegnum mismunandi félög. Hvort viltu verksmiðjumat eða nýeldaðan mat fyrir barnið þitt? Þetta snýst ekki bara um peninga. Þetta snýst um börnin. Skólamatur ehf. rekur aðalstöð sína á Iðavöllum 1 í Reykjanesbæ, langt frá skólunum sem maturinn er ætlaður. Maturinn er eldaður í fjarlægri verksmiðju, honum pakkað í plastumbúðir og ekið um borgina. Þetta er ekki matreiðsla, þetta er vörudreifing. Þegar börn sjá matreiðslufólk elda mat í skólanum sínum læra þau eitthvað um mat, um næringu og um virðingu fyrir handverki. Þegar kassar berast úr sendibifreið læra þau ekkert. Hafnarfjörður víti til varnaðar Í Hafnarfirði skipti meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks um þjónustuaðila í ágúst 2025. Útboðsskilmálarnir voru hannaðir til að lágmarka kostnað, meðal annars með svokölluðum „raunskráningarskilmálum“ þar sem aðeins er greitt fyrir máltíðir sem raunverulega eru borðaðar. Reynd fyrirtæki á markaðnum, þar á meðal Skólamatur ehf., buðu ekki í verkið vegna þess að skilmálarnir voru rekstrarlega ósjálfbærir. Niðurstaðan var sú að eitt fyrirtæki, I-mat ehf., vann útboðið nánast án samkeppni. Þetta er viðvörun. Þegar kostnaðarlækkun verður aðalmarkmiðið í matarþjónustu barna eru það börnin sem borga verðið. Ókeypis skólamáltíðir ná ekki tilgangi sínum Í ágúst 2024 hófust ókeypis skólamáltíðir í grunnskólum, sem ríkið niðurgreiðir að 75% hluta. Þetta kostar Reykjavíkurborg um 1,7 milljarða króna á ári. Tilgangurinn er góður, en þegar stór hluti þess fjár rennur til einkaaðila sem taka út hagnað, arðgreiðslur og millifærslur til skyldra félaga, þá nær stefnan ekki markmiði sínu. Opinbert fé á að fara í gæðamat fyrir börn, ekki í arðgreiðslur og húsaleigu fjölskyldufyrirtækis í Reykjanesbæ. Lausnin er einföld Allir leik- og grunnskólar Reykjavíkur eiga að reka eigin eldhús og ráða eigið matreiðslufólk. Sósíalistaflokkurinn lagði þessa tillögu fram í skóla- og frístundaráði árið 2023 en hún var felld af þáverandi meirihluta. Við í Sósíalistaflokknum munum leggja tillöguna aftur fram. Kópavogur sýnir að þetta virkar. Tíu af ellefu grunnskólum þar elda mat á staðnum. Ef Kópavogur getur þetta, þá getur Reykjavík það líka. Börnin okkar eiga skilið mat sem er eldaður fyrir þau, ekki mat sem er framleiddur fyrir hagnað. Höfundur skipar 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sósíalistaflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar