Spekileki og ástríða í Kópavogi Ómar Stefánsson skrifar 22. mars 2026 10:32 Það er spekileki í bæjarstjórn Kópavogs. Mögulega er ég að nota orðið í aðeins óvenjulegu samhengi. En mér finnst það viðeigandi. Þar sem allir bæjarfulltrúar sem setið hafa í minnihluta á þessu kjörtímabili eru að hætta. Aldrei áður í sögu Kópavogs hafa allir bæjarfulltrúar minnihlutans hætt á einu bretti. Hægt er að skoða það hér: https://is.wikipedia.org/wiki/B%C3%A6jarstj%C3%B3rnarkosningar_%C3%AD_K%C3%B3pavogi Ég segi það og byggi á minni fyrri reynslu í bæjarstjórn Kópavogs að það er ekki gott. Það er betra fyrir lýðræðið að það færist þekking á milli kjörtímabila. Bæði í meirihluta og minnihluta. Ég þekki það frá þeim tíma sem ég lenti í minnihluta og engin í meirihlutanum hafði verið í meirihluta áður. Þó svo að tveir hafi haft reynslu á því að sitja í bæjarstjórn en þá í minnihluta. Ég gerði þá mitt besta að veita bæði aðhald og jafnframt vann ég með þeim að fjárhagsáætlunargerð. Ég fékk ekki mikið hrós fyrir frá öðrum í þáverandi minnihluta og var uppnefndur “ráðgjafinn”. Það er mikilvægt að þegar fólk er að vinna fyrir bæinn sinn eins og allir bæjarfulltrúar eru og eiga að gera að það ríki gagnkvæm virðing og sátt um þau stóru atriði sem eiga að standa lengi. Það hafa verið stigin stór skref til baka á þessu kjörtímabili. Gömul pólitík sem hafði verið að fullu aflögð á árinu 2008 hefur verið tekin upp og utanaðkomandi “sérfræðingar” hafa verið látnir marka stefnu Kópavogsbæjar í hinum ýmsu málum eða að bæjarfulltrúar meirihlutans hafa haldið öllum upplýsingum að sér. Lítið sem ekkert hefur verið hlustað á þá 5 bæjarfulltrúa sem hafa verið í minnihluta þrátt fyrir að þau hafið verði kosin til þessarar starfa af stórum hluta bæjarbúa. Það þarf að skapa meiri sátt um stór verkefni sem eiga að móta bæinn til lengri framtíðar. Enn frekar á að standa vörð um þann góða sið að vera ekki að fara í einhver umdeild verkefni nokkrum dögum áður en umboð til framkvæmda er endurnýjað í kosningum og tala nú ekki um ef ekki er gert ráð fyrir verkefnum í fjárhagsáætlun. Í ljósi þess að Kópavogsbær er með flotta starfsmannastefnu og gerir þær væntingar að allir starfsmenn séu að gera sitt allra besta á hverjum degi. Er undarlegt að ekki sé reynt að nýta þá ástríðu sem þau öll sem kjörin voru í bæjarstjórn búa yfir. Heldur bara nýta rétt rúmlega helming bæjarfulltrúa. Það er okkar hagur að fyrir Kópavog séu þau saman í bæjarstjórn að vinna að öllum framfaramálum fyrir bæinn til framtíðar og nýta krafta allra bæjarfulltrúa. Þannig er best að vinna og ná árangri saman fyrir Kópavog. Höfundur skipar 1. sæti Bandalag Fyrir Kópavog og Vinstri grænna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira