Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. mars 2026 20:32 Svona var umhorfs í fríhöfninni í dag. Vísir/Lýður Valberg Öllu flugi til og frá landinu var aflýst í dag vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Tíu þúsund farþegar sem áttu bókað flug með Icelandair voru á meðal þeirra sem sátu fastir.
Á föstudagssíðdegi væri fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli allajafna stappfull af fólki en í dag var hún galtóm. Ástæðan var óveðrið sem gerði landsmönnum víða lífið leitt í dag. Fréttastofa kíkti á flugvöllinn, í fríhöfnina og flugbrautina, þar sem var hvasst. Fimmtíu flugferðum aflýst Gular veðurviðvaranir tóku gildi klukkan átta í morgun í flestum landshlutum utan Norðausturlands og Austurlands og eru í gildi í nótt og þar til í fyrramálið. Veðrið hafði víðtæka röskun í för með sér og lokanir vega á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Öllu flugi Icelandair, jafnt innanlandsflugi sem og millilandaflugi til og frá landinu auk flugferða allra annarra flugfélaga var aflýst. Viktor Guðnason forstöðumaður flugvallasviðs Icelandair segir um fimmtíu flugferðir hafa fallið niður í dag. „Það voru 38 brottfarir frá Keflavík, svipað í komum svo voru þetta ellefu brottfarir í innanlandsfluginu líka frá Reykjavík sem við urðum að fella niður.“ Þannig hafi veðrið haft áhrif á ferðalög rúmlega tíu þúsund flugfarþega. Viktor segir skrítið að sjá flugstöðina í Keflavík svo tóma líkt og í dag. Annað eins hefur ekki sést síðan í Covid faraldrinum. „Þetta er auðvitað mjög sérstakt, þetta er auðvitað frekar sárt. Þetta er auðvitað sá tími dags sem hér ætti að vera mikið líf og mikið fjör.“ Öryggi farþega sé hinsvegar það eina sem skipti máli, flugfélagið hafi gripið til aðgerða strax í gær. „Við sáum það strax í gærkvöldi að það stefndi í að morgundagurinn yrði mjög krefjandi, því var þessi ákvörðun tekin strax um miðjan dag í gær, þetta er gert til þess að tryggja það að þetta verndi kerfið í heild sinni og við séum ekki að raska farþeganum meira en þörf er á.“
Samgöngur Veður Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Sjá meira