Gert að rannsaka tvö mál betur en gefa ekkert upp Árni Sæberg skrifar 20. mars 2026 16:24 Meint brot mannsins voru framin á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Embætti Héraðssaksóknara gefur ekkert upp um stöðuna á rannsókn mála tveggja barna á leikskólanum Múlaborg, sem Ríkissaksóknari gerði embættinu að taka til meðferðar á ný. Starfsmaður á leikskólanum hefur verið ákærður fyrir að nauðga einu barni tvívegis.
Rúmlega tvítugur karlmaður, starfsmaður leikskólans Múlaborgar, var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í lok sumars 2025 grunaður um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum Múlaborg. Starfsmaðurinn hefur verið rekinn. Mál sautján barna á leikskólanum höfðu verið tekin til skoðunar hjá lögreglunni, foreldrar þrettán barna kærðu meint brot starfsmannsins en rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara. Alls sex kærur Samkvæmt svari Ríkissaksóknara við fyrirspurn Vísis, sem barst fyrr í vikunni, bárust embættinu alls sex kærur vegna ætlaðra brota gegn börnum á leikskólanum. Þar af hafi verið tekin afstaða til kæru í fimm málum. Af kærðum ákvörðunum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðisins um að hætta rannsókn máls hafi tvær ákvarðanir verið staðfestar. Ein ákvörðun hafi verið felld úr gildi og mælt fyrir um frekari rannsókn. Ákvarðanir Héraðssaksóknara um að fella niður tvö mál, sem kærðar voru til ríkissaksóknara, hafi báðar verið felldar úr gildi og mælt fyrir um frekari rannsókn. Megi ekki tjá sig Fyrirtaka var í máli í Héraðsdómi í byrjun vikunnar og af því tilefni sendi Vísir Sigurði Ólafssyni, sem fer með málið fyrir hönd ákæruvaldsins, fyrirspurn varðandi hvað hefði komið fram í fyrirtökunni og stöðu málsins almennt. Þau svör bárust að þinghöld í málinu væru lokuð og því væri ekki heimilt að greina frá nokkru því sem í þeim kæmi fram. „Hvað varðar önnur mál sem eru til rannsóknar hjá lögreglu og/eða til afgreiðslu hjá ákæruvaldi þá sömuleiðis er mér óheimilt að veita upplýsingar um þau,“ sagði jafnframt í svarinu. Vísir ítrekaði fyrirspurn sína í gær í ljósi svars Ríkissaksóknara um að Héraðssaksóknara hefði verið gert að taka mál tveggja barna til meðferðar á ný. Þeirri ítrekun hefur ekki verið svarað. Þegar mál barnanna voru felld niður á sínum tíma greindi Ríkisútvarpið frá því, með vísan í skriflegt svar Sigurðar. Í því svari kom einnig fram að starfsmaðurinn hefði játað sök að hluta.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Leikskólar Lögreglumál Tengdar fréttir Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Lögregla þarf aftur að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum sem tengjast meintum kynferðisbrotum fyrrverandi starfsmanns Múlaborgar gegn börnum. Lögregla hafði ákært í einu máli og látið önnur mál niður falla en foreldrar barnanna kærðu ákvörðunina til Ríkissaksóknara, sem hefur nú snúið ákvörðuninni við. 5. febrúar 2026 18:20 Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56 Kæra niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi Deildarstjóri á leikskólanum Múlaborg er komin í veikindaleyfi vegna streitu og álags meðal annars í tengslum við meint kynferðisbrot starfsmanns á deildinni. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi starfsmannsins gegn barninu þeirra. Móðir stúlku sem greindi frá því fyrir rúmu ári að hana grunaði að brotið hefði verið á dóttur sinni segir allt kerfið hafa brugðist. Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í kvöld. 18. nóvember 2025 22:00 Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira
Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Lögregla þarf aftur að taka aftur upp rannsókn á tveimur málum sem tengjast meintum kynferðisbrotum fyrrverandi starfsmanns Múlaborgar gegn börnum. Lögregla hafði ákært í einu máli og látið önnur mál niður falla en foreldrar barnanna kærðu ákvörðunina til Ríkissaksóknara, sem hefur nú snúið ákvörðuninni við. 5. febrúar 2026 18:20
Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56
Kæra niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi Deildarstjóri á leikskólanum Múlaborg er komin í veikindaleyfi vegna streitu og álags meðal annars í tengslum við meint kynferðisbrot starfsmanns á deildinni. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu að loka rannsókn á meintu ofbeldi starfsmannsins gegn barninu þeirra. Móðir stúlku sem greindi frá því fyrir rúmu ári að hana grunaði að brotið hefði verið á dóttur sinni segir allt kerfið hafa brugðist. Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í kvöld. 18. nóvember 2025 22:00