Innlent

Eldur í raf­geymum hjá Hring­rás

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
image
Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað úr um klukkan þrjú í nótt að athafnasvæði Hringrásar í Hafnarfirði á Álhellu.

Þar hafði kviknað í rafgeymum sem hafði verið staflað í kar og var eldurinn staðbundinn. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að alls engin hætta hafi verið á því að eldurinn næði að breiðast út og þurfti aðeins einn dælubíl í verkið til að sinna slökkvistarfinu sem tók um klukkustund.

Að öðru leyti var nóttin róleg hjá slökkviliðinu og ekkert um útköll vegna veðursins sem nú gengur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×