Veik og þreytt dag eftir dag Nanna Hlín Halldórsdóttir, Hugrún Vignisdóttir, Anna Sigrún Ingimarsdóttir, Elísa Ósk Línadóttir og Freyja Imsland skrifa 19. mars 2026 10:30 Á undanförnum árum hefur jafnrétti í heilbrigðisþjónustu orðið æ fyrirferðameira í fjölmiðlum sem mikilvægt réttlætismál. Engu að síður er staðan enn sú í dag, árið 2026, að konur finna fyrir því að ekki sé á þær hlustað þegar þær reyna að leita sér hjálpar vegna veikinda. Sem konur og kvár sem búa við ýmiskonar langvinn veikindi finnum við fyrir því að stuðningur og heilbrigðisþjónusta við fólk í okkar stöðu er langt frá því að vera heildstæð eða kerfisbundin. Jafnvel mætti segja að heilbrigðisþjónustan við okkar hóp sé frekar tilviljanakennd og ítrekað hafa konur í okkar stöðu komið að lokuðum dyrum þegar þær leita sér heilbrigðisþjónustu. Tilviljanakennd heilbrigðisþjónusta felst í að þú þarft að ná að „hitta á réttan lækni”, að læknir „gefist ekki upp” eftir að hafa útilokað sjúkdóma sem njóta meiri viðurkenningar, D-vítamín- og járnskort. Gjarnan er stungið upp á þunglyndislyfum við verkjaköstum, nú eða kvíðastillandi gegn öllum „áhyggjunum”. Setningin „það kom allt eðlilega út” er gjarnan notuð til þess að burtskýra vanda sem við upplifum og læknarnir skilja ekki og hafa ekki innsýn í. Jafnvel geta ráð sem virðast „vel meint” snúist upp í andhverfu sína þegar gengið er yfir mörk með særandi og lítillækkandi orðum. Til dæmis um að konur þurfi bara „vera duglegri að hreyfa sig” og „harka af sér” því ekki vilji þær nú verða verkjalyfja-fíklar. Þær sem eru það lánssamar að finna góðan meðferðaraðila upplifa oft að þjónustan hverfi þegar viðkomandi lætur af störfum, því þekkingin virðist oft bundin áhugasömu og ástríðufullu starfsfólki. Á málþinginu „Veik og þreytt dag eftir dag“ sem haldið verður þann 26. mars næstkomandi af ÖBÍ og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands munu fjöldamörg samtök sem varða langvinna sjúkdóma og kvenheilsu koma saman. Verða þar reynslusögur þessa hóps í fyrirrúmi, auk baráttu þeirra sem skiptir máli fyrir langveika og þá sérstaklega langveikar konur og kvár. Rannsóknir sýna að mörg þeirra sem búa við langvinn veikindi á borð við ME, langvinnt Covid, POTS, vefjagigt, endó eða PCOS lifa við fleiri samhliða sjúkdóma og kvilla sem sýnir augljóslega þörfina fyrir heildstæða heilbrigðisþjónustu við þennan hóp. Rannsóknir hafa líka sýnt að aðgengi að heilbrigðisþjónustu, og almennum skilningi gagnvart veikindum, getur orðið enn takmarkaðri þegar einstaklingur tilheyrir mörgum jaðarsettum hópum, til dæmis ef viðkomandi er einnig brún/svört, hinsegin, skynsegin, innflytjandi, eða feit. Í ráðherratíð Svandísar Svavarsdóttur sem heilbrigðisráðherra voru stigin fyrstu skrefin að heilbrigðisþjónustu fyrir konur (2021) sem tilraunaverkefni innan heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þarna hefði getað myndast kjörið tækifæri, ekki aðeins fyrir heildstæða þjónustu fyrir kvenheilsu, heldur einnig fyrir slíka þjónustu fyrir flókin langvinn veikindi. Við köllum eftir þróun og stofnsetningu slíkrar heilsugæslu fyrir okkar hóp. Sú meðferð, þjónusta og stuðningur sem er til staðar í dag fyrir konur og kvár eins og okkur er mjög svo skorin við nögl. Þjónustan er í raun ekki í boði fyrir öll þar sem aðgengi að henni er ábótavant. Kostnaður er mörgum ofviða, aðgengi að byggingum er oft takmarkað og húsakostur heilsuspillandi. Víða eru ekki til staðar skoðunarbekkir sem henta mismunandi líkömum, biðlistar eru langir og almennt eru úrræði hugsuð til skammtíma. Þá er ekki jafnt aðgengi að þjónustu eftir búsetu, og oft efiðara fyrir langveika í smáum byggðarlögum að eiga við samfélagslegar áskoranir. Erfitt getur reynst að fá aðgang að meðferðum og lyfjum sem auka lífsgæði. Vísun í skort á gagnreyndum vísindarannsóknum er nýtt til þess að draga úr þjónustu við þennan hóp, jafnvel þegar vitað er að rannsóknir sem og vísindakerfið almennt hefur ekki sinnt þessum hóp sem skyldi. Allt þetta dregur úr lífsgæðum og eykur fötlun þessa hóps, til að mynda með aukinni félagslegri einangrun. Við skorum á stjórnvöld að koma og hlusta á reynslusögur langveikra kvenna kl. 13.00 þann 26. mars á Grand Hótel og að sinna þessum mikilvæga málaflokki betur! Skráning er hér: Höfundar: Nanna Hlín Halldórsdóttir, langveik, fötluð kona og rannsóknarlektor við Háskóla Íslands. Hugrún Vignisdóttir, varaformaður Samtaka um POTS á Íslandi og sálfræðingur í bataleyfi. Anna Sigrún Ingimarsdóttir, doktor í fötlunarfræði, félagsráðgjafi og meðlimur í Tabú. Elísa Ósk Línadóttir, formaður PCOS samtaka Íslands og skólastjórnandi Freyja Imsland, doktor í erfðafræði og varamanneskja í stjórn ME félags Íslands Heimildir: Blease C, Carel H, Geraghty K. (2017). “Epistemic injustice in healthcare encounters: evidence from chronic fatigue syndrome“. J Med Ethics 43(8): 549-557. doi: 10.1136/medethics-2016-103691. Epub 2016 Dec 5. PMID: 27920164. Blitshteyn S, Grubb BP. (2026) Distress in postural orthostatic tachycardia syndrome (POTS) is largely driven by ineffective healthcare, not patients' attitudes. J Psychosom Res 203:112552. doi: 10.1016/j.jpsychores.2026.112552. Collins, P. H. & Bilge, S. (2020). Intersectionality. Politi Press. Finnborg Salóme Jónsdóttir. (2021). Heilsufar og heilbrigðisþjónusta: Kynja- og jafnréttissjónarmið. Stjórnarráð Íslands: Heilbrigðisráðuneytið. Smith, Kerry. (2023). Women’s health research lacks funding - These charts show how. Nature. https://www.nature.com/immersive/d41586-023-01475-2/index.html. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar