Orkuveita Reykjavíkur – gerum betur Helgi Áss Grétarsson skrifar 19. mars 2026 06:20 Miðflokkurinn vill tryggja ábyrga stjórn á fjármálum Reykjavíkurborgar svo að hægt sé að bæta grunnþjónustu við fólk og fyrirtæki. Það er orðið tímabært að minnka gullhúðun stjórnsýslunnar og einbeita sér að kjarnastarfsemi borgarinnar. Forgangsröðun í rekstrinum er hér lykilatriði. Það á einnig við um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækja þess. Hækkanir gjalda á almenning Á yfirstandandi kjörtímabili hafa dótturfélög Orkuveitu Reykjavíkur hækkað álögur á viðskiptavini sína, hvort sem það eru heimili eða fyrirtæki. Hækkunin nemur tugum prósenta en í fjölmiðlum fyrir skömmu var fjallað um hækkun hitaveitureikninga Veitna, dótturfélags Orkuveitunnar. Arðgreiðslur í borgarhítina Mælt á verðlagi hvers árs hefur Orkuveitan greitt rúmlega 30 milljarða króna í arð í aðalsjóð Reykjavíkurborgar á árunum 2017-2025. Þessa fjárhæð hefði verið hægt að nota til að greiða niður skuldir fyrirtækisins eða lækka gjaldskrá fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Þess í stað fóru fjármunirnir í að standa straum af stöðugt vaxandi útgjöldum borgarhítarinnar, það er, þess hluta borgarsjóðs sem á að standa undir hefðbundnum verkefnum sveitarfélagsins. Arðgreiðslur Orkuveitunnar hafa fegrað rekstrarniðurstöðu A-hluta borgarsjóðs. Fjárfest í gæluverkefnum Háar tekjur Orkuveitusamstæðunnar hafa í gegnum tíðina skapað freistnivanda í að setja peninga fyrirtækisins í ýmis gæluverkefni. Sem dæmi kostuðu höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi stjarnfræðilega háar fjárhæðir. Fyrir nokkrum árum var farið í framkvæmdir til að endurhanna mannvirki og útisvæði við Elliðaárstöð. Þótt sú hönnun hafi fengið viðurkenningar á sviði arktektúrs er ljóst að kostnaðurinn við verkið var hár, sjálfsagt vel yfir einn milljarð króna, sjá t.d. frétt í Morgunblaðinu 6. maí 2023. Rekstur dótturfyrirtækja Orkuveitunnar á borð við Ljósleiðarann og Carbfix er áhættusamur og vart tengdur kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Breytinga er þörf Orkuveita Reykjavíkur, sem er 94 prósent í eigu Reykjavíkurborgar, er eins og fjöregg sveitarfélagsins. Margt öflugt fólk starfar í fyrirtækinu og almennt séð hefur rekstrarafkoma fyrirtækisins verið vel viðunandi undanfarin ár. Eigi að síður væri til bóta að einfalda rekstur fyrirtækisins og draga úr rekstraráhættu. Einnig þarf að leita leiða til að lækka álögur á borgarbúa. Breyta þarf núverandi arðgreiðslustefnu félagsins svo að það sé betur í stakk búið til að mæta þörf sinni til að fjárfesta í nauðsynlegum grunninnviðum. Besta leiðin til að tryggja umbreytingu í fjármálastjórn Reykjavíkurborgar, og þar með talið í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur, er að Miðflokkurinn fái öflugan stuðning í borgarstjórnarkosningunum hinn 16. maí næstkomandi. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Helgi Áss Grétarsson Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar