Kennsluafsláttur framhaldsskólakennara – Er það eitthvað sem má skoða? Guðmundur Grétar Karlsson skrifar 18. mars 2026 11:31 Í íslenskum framhaldsskólum gildir kerfi sem sjaldan er rætt opinberlega en hefur engu að síður veruleg áhrif á skipulag skólastarfs. Þetta er svokallaður lífaldurstengdur kennsluafsláttur framhaldsskólakennara. Fyrir kosningar í stjórn og um formann Félags framhaldskólakennara nú í janúar s.l. var orðræðan þannig meðal frambjóðenda að verja ætti núverandi kerfi. Í þessari grein er hugmyndin að varpa ljósi í hverju kennsluafsláttur felst og nokkra þætti sem honum tengjast. Hvað felst í kennsluafslættinum? Starf framhaldsskólakennara er skilgreint í heildarvinnutíma á ári þar sem kennsla er stærsti hluti starfsskyldunnar. Samkvæmt vinnumati framhaldsskólakennara er kennsluhlutinn fyrir kennara yngri en 55 ára 24 kennslustundir í staðinni kennslu á viku miðað við 100% starf. Við ákveðin aldursmörk lækkar þessi kennsluskylda: 55–59 ára: er kennsluskyldan 23 kennslustundir (4,83% afsláttur). 60 ára og eldri: er kennsluskyldan 19 kennslustundir (20,83% afsláttur). Mikilvægt er að hafa í huga að þessi réttur tengist lífaldri en ekki starfsaldri. Kennari sem hefur unnið í skemmri tíma við kennslu getur því fengið kennsluafslátt til jafns við þá sem kannski hafa helgað sig starfinu allan sinn starfsferil. Í þessu sambandi má velta fyrir sér hvort að slík aldursmismunun standist lög um jafna meðferð á vinnumarkaði frá árinu 2018. Afslátturinn felur ekki í sér að kennarar kenni minna og vinni jafn mikið. Heildarstarfsskylda lækkar samhliða kennsluafslættinum og því er um að ræða ákveðna kjarabót. Tabú í umræðunni Þrátt fyrir að þetta kerfi sé vel þekkt innan framhaldsskólakerfisins virðist umræðan um það oft fara fram á bak við tjöldin. Spurningar um jafnræði og réttlæti kerfisins eru sjaldan ræddar opinberlega. Við vinnslu þessarar greinar var ég var við þetta. Mín upplifun var sú að ég ætti ekki hafa of hátt um þetta og tala varlega. Einnig tók ég eftir að fólk veigrar sér við að segja sínar skoðanir á þessu kerfi opinberlega. Það hefur að mínu mati myndast óheilbrigð umræðumenning í kringum þetta málefni. Áhrif aldurstengds kennsluafsláttar á ráðningar og hreyfanleika kennara Aldurstengdur kennsluafsláttur getur haft veruleg áhrif á hreyfanleika kennara innan skólakerfisins. Fyrirkomulagið getur torveldað ráðningar eftir ákveðinn aldur, þar sem gert er ráð fyrir minna vinnuframlagi án þess að launakostnaður lækki að sama skapi. Þetta skapar áskoranir fyrir skólastjórnendur, sérstaklega þegar rekstur er þröngur og getur dregið úr vilja þeirra til að ráða kennara sem þegar hafa áunnið sér slíkan afslátt. Auk þess getur þetta fyrirkomulag haft neikvæð áhrif á möguleika til að laða að fólk með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Slíkir einstaklingar búa oft yfir dýrmætri þekkingu og hæfni sem gæti nýst vel í kennslu, en kostnaðaruppbygging kerfisins getur gert ráðningar þeirra síður fýsilegar. Þannig getur aldurstengdur kennsluafsláttur óbeint takmarkað fjölbreytni og þekkingarflæði inn í skólana. Sveigjanleg starfslok Þótt kerfið hafi verið hugsað í byrjun sem viðurkenning á löngu ævistarfi er ekki sjálfgefið að allir kennarar njóti þess. Þar sem rétturinn byggir á lífaldri en ekki starfsaldri getur niðurstaðan orðið sú að sumir kennarar njóti afsláttar í nokkur ár á meðan aðrir ná aldrei að nýta hann. Í dag eru komnir til nýir þættir umfram almenn lífeyrisréttindi eins og t.d. séreignasparnaður og tilgreind séreign sem geta stuðlað að sveigjanlegri starfslokum. En núverandi kerfi gengur út á það að kennarar taki út kennsluafslátt þegar lífeyriskerfið er farið að gefa þeim færi á minnka við sig vinnu eða hætta störfum. Nýliðun starfsstéttarinnar Meðalaldur framhaldskólakennara er um 53 ár og því er ljóst að á næstunni eru töluverðar endurnýjunar þörf. Framhaldsskólar eiga víða erfitt með að ráða kennara með sérhæfða menntun s.s. í verk- og starfsgreinum, raungreinum og stærðfræði. Fyrir fólk með slíka fagmenntun standa oft til boða störf utan skólakerfisins með hærri launum. Ef markmiðið er að laða yngra og vel menntað fólk inn í kennslu þarf að skoða hvort launakerfið sjálft sé nægilega samkeppnishæft. Þá má velta fyrir sér hvort kennsluafsláttur við 55 ára og 60 ára aldur sé sá hvati sem þarf til að laða inn slíka einstaklinga. Dæmi um aðra leið Reynslan úr skólakerfinu bendir til þess að hægt sé að nálgast þetta fyrirkomulag með öðrum hætti. Kennarar í Verzlunarskóla Íslands ákváðu í kringum aldamótin að afsala sér m.a. aldurstengdum kennsluafslætti í kjarasamningi sínum. Í staðinn var svigrúmið nýtt til að hækka laun kennara. Ég hef heyrt því fleygt fram að laun kennara í Verzlunarskólanum séu ca 10% hærri en hjá framhaldsskólakennurum sem starfa samkvæmt hefðbundnum samningum ríkisins vegna þessa. Ef að þessi leið yrði valin fyrir aðra framhaldskólakennara í framtíðinni mætti hugsa að sér að kennarar hefðu val um hvort þeir seldu afsláttinn gegn hærri launum eða héldu sér í óbreyttu kerfi fram að starfslokum. Að lokum Framundan er aðalfundur Félags framhaldskólakennara þar sem línurnar verða lagðar með framhaldið. Þar má nefna virðismatsvegferð og undirbúning nýrra kjarasamninga. Ég hvet kjörna fulltrúa félagsins og alla félagsmenn til að skoða þetta kerfi heildstætt, taka opna umræðu og jafnframt að velta upp hvort núverandi kerfi standist tímans tönn. Höfundur hefur starfað í framhaldsskóla frá árinu 2003. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar