Má bjóða þér að fara eftir lögum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar 18. mars 2026 07:30 „Með lögum skal land byggja” er orðatiltæki sem lang flestir Íslendingar ættu að kannast við, en þetta eru einmitt einkennisorð íslensku lögreglunnar og eru þau að öllum líkindum fengin úr Brennu-Njáls sögu. Þetta eru orð að sönnu og hafa alltaf átt við í gegnum mannkynssöguna, af því hvað er samfélag án laga? Á Íslandi er það löggjafavaldið (Alþingi) sem setur lög og síðan er það framkvæmdavaldsins, sem sagt ríkisstjórnarinnar, að sjá um það hvernig þau lög eru útfærð, til að mynda með reglugerðum. En hver sér síðan til þess að lögunum sé framfylgt? Strangt til tekið er það hlutverk framkvæmdavaldsins, en þegar hlutirnir eru skoðaðir þá leynast, inn á milli, lög og reglugerðir sem enginn virðist sjá til þess að sé framfylgt. Greinahöfundur rakst einmitt á eina slíka reglugerð við störf sín sem rekstrarstjóri hópbifreiðafyrirtækis, reglugerð nr. 1330/2023. Þar er um að ræða “reglugerð um opinber innkaup á vistvænum og orkunýtnum ökutækjum”, setta af Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu árið 2023. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að minnkun kolefnislosunar og er margt nefnt í þeim efnum, en það sem vekur athygli greinahöfundar er að í reglugerðinni kemur fram að lágmarksinnkaupamarkmið opinberra aðila varðandi hlutfall vistvænna hópbifreiða skuli vera 65% frá 1. janúar 2026 (var 45% fyrir). Reglugerðin nær ekki einungis yfir opinber innkaup, heldur einnig opinbera þjónustusamninga um farþegaflutninga. Í reglugerðinni kemur einnig fram að opinber aðili sem ræðst í innkaup beri ábyrgð á því að umsamin ökutæki séu vistvæn og orkunýtin í a.m.k. sama hlutfalli og lágmarksmarkmið reglugerðarinnar segir til um. En þá spyr greinahöfundur “hver passar upp á það að opinberir aðilar séu ekki að skjótast undan þeirri ábyrgð?”. Af því hann hefur tekið þátt í þónokkrum útboðum (og heyrt af enn fleiri) sem hafa átt sér stað eftir gildissetningu þessarar reglugerðar og ekki hefur verið minnst á hana í neinu þeirra. Það eru jafnvel til dæmi um það að opinberir aðilar hreinlega refsi framsæknum og metnaðarfullum hópbifreiðafyrirtækjum, þar sem þau eru dregin niður fyrir að vera of metnaðarfull þegar það kemur að orkuskiptunum í tilboðum sínum, í útboðum þar sem krafan er mun lægri en segir til um í reglugerðinni. Er valkvætt að fara eftir lögum? Greinahöfundur ákvað því að vinna rannsóknarvinnu til þess að komast til botns í þessu og sendi fyrirspurn á Fjársýslu ríkisins, sem hefur umsjón með útboðsmálum hins opinbera. Svarið frá Fjársýslunni var ekki ríkisstofnun sæmandi, en þar kom fram að markmið reglugerðarinnar væru einungis leiðbeinandi og að kaupendum væri í raun frjálst að fara eftir henni. Fjársýsla ríkisins sagði að það væri VALKVÆTT AÐ FARA EFTIR LÖGUM sem sett hafa verið af Alþingi Íslendinga. Fyrir hinn almenna borgara birtist þetta kannski ekki sem eitthvað stórmál, “hverjum er ekki drullusama hvort að innkaupamarkmiði varðandi vistvæn ökutæki sé framfylgt?”. Alvarleiki málsins leynist í raun í fordæminu sem það setur og afleiðingum þess á lög sem skipta þjóðina raunverulegu máli. Það opnar á spurninguna: er það bara þessi reglugerð sem er valkvætt að fara eftir, eða er það svoleiðis fyrir þær allar? Hvar er línan dregin? Hver ákveður hvaða lögum skal fylgja og hvaða lög eru bara valkvæð? Hvernig er hægt að skilda menn að fara eftir sumum lögum, en ekki öðrum? FÓLKI ER EKKI FRJÁLST AÐ FARA EFTIR LÖGUM; ÞVÍ BER SKYLDA TIL ÞESS! Því líkt og Njáll á Bergþórshvoli mælti forðum: “með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða“. Höfundur er fjármálaverkfræðingur og rekstrarstjóri hópbifreiðafyrirtækis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Sjá meira
„
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar