Körfubolti

„Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Ásta Júlía er lykilleikmaður hjá íslenska landsliðinu. 
Ásta Júlía er lykilleikmaður hjá íslenska landsliðinu.  Vísir / Hulda Margrét

Landsliði Íslands í körfubolta hefur borist mikill liðsstyrkur fyrir gríðarmikilvægan lokaleik gegn Portúgal í kvöld. Ásta Júlía Grímsdóttir hefur jafnað sig af meiðslunum sem héldu henni frá keppni í síðasta leik.

Miðherjinn var fjarri góðu gamni í tapinu gegn Serbíu í síðustu viku, eftir að hafa snúið sig illa á fyrstu æfingunni úti í Serbíu.

Hún sneri svo aftur heim til Íslands og þakkaði fyrir það að heilir sex dagar séu á milli leikjanna tveggja. Nú er komið að Portúgölum í kvöld og Ásta er klár í slaginn.

„Ég stefni bara á að spila. Ég er búinn að taka nokkrar æfingar og líður vel. Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja, svo ég geti verið tilbúin.“

Serbía tryggði sér toppsætið í riðlinum með sigrum gegn Íslandi og Portúgal í síðustu viku. Nú berjast Ísland og Portúgal um annað sætið í lokaleik riðlakeppninnar.

Sigur í kvöld myndi tryggja Íslandi annað sætið og áframhald í milliriðla undankeppninnar. Tap þýðir að liðið dettur úr leik og fer ekki á EM árið 2027.

Ásta Júlía segir liðið hafa tekið mikil framfaraskref á skömmum tíma og býst við betri frammistöðu í kvöld heldur en í síðasta leik gegn Portúgal.

„Við vorum með nýjan þjálfara þá, þannig að síðasti gluggi var svolítið svona við að prófa okkur áfram og sjá hvernig hlutirnir virkuðu. Mér fannst við miklu betri á móti Serbíu núna, þannig að ég býst líka við betri leik á móti Portúgal.“

Nánar verður fjallað um leik Íslands og Portúgal í Sportpakka Sýnar í kvöld. Leikurinn verður líka í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×