Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum Verkfræðingafélag Íslands 19. mars 2026 08:36 Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands segir nám í verkfræði og tæknifræði bjóða upp á spennandi starfsferil. Dagur verkfræðinnar er á morgun. „Verkfræðingar og tæknifræðingar koma að verkefnum sem hafa bein áhrif á líf okkar allra allt frá orkukerfum og samgöngum til nýsköpunar og tæknilausna framtíðarinnar. Slíkt nám opnar mörg tækifæri og býður upp á spennandi starfsferil,“ segir Helgi Gunnarsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands en Dagur verkfræðinnar fer fram föstudaginn 20. mars á Hilton Reykjavík Nordica.
Á Degi verkfræðinnar munu verkfræðingar og tæknifræðingar fjalla um margvísleg viðfangsefni, til að mynda orkuskipti og þróun nýrrar tækni, nýsköpun og skapandi lausnir á flóknum áskorunum samfélagsins. Við sama tækifæri verður veitt viðurkenningin Teningurinn fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Teningurinn verður veittur á Degi verkfræðinnar fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Mikilvægt að vekja áhuga á tæknigreinum Helgi segir þörf fyrir vel menntað tæknifólk fara vaxandi og því mikilvægt að vekja áhuga ungs fólks á námi í raungreinum, verkfræði og tæknifræði. Dagur verkfræðinnar er hluti af viðleitni til að kynna þessi störf og fyrirlestrar dagsins sýna vel hvernig verkfræðingar og tæknifræðingar leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Fjöldi spennandi fyrirlestra fer fram á morgun. Dagskrána er hægt að kynna sér á vefsíðu félagsins, vfi.is Meðal fyrirlestra má nefna; Stækkun orkuvers í skugga eldsumbrota, ADHD sem styrkleiki? Ofureinbeiting og margbreytileg hugsun, Íslenskan í heimi gervigreindar og Þróun og helstu framkvæmdir hjá Faxaflóahöfnum, svo aðeins fátt eitt sé nefnt en dagskrána er hægt að kynna sér hér. Gegna lykilhlutverki í uppbyggingu samfélags „Verkfræðingar og tæknifræðingar gegna lykilhlutverki í uppbyggingu samfélagsins. Þeir koma að þróun orkukerfa, samgangna, innviða og tæknilausna sem móta daglegt líf okkar allra. Í raun má segja að flestir þeir innviðir sem samfélagið byggir á hafi orðið til með þátttöku verkfræðinga og tæknifræðinga. Verkfræði og tæknifræði bjóða upp á skapandi störf þar sem tekist er á við raunverulegar áskoranir, Dagur verkfræðinnar varpar ljósi á þessi störf,“ segir Helgi. Húsið opnar klukkan 12.30 og stendur dagskráin frá 13 til 16.30. Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis.
Tækni Orkumál Gervigreind Nýsköpun Orkuskipti Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Hækka iðgjöld en vilja greiða út milljarða í arð Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira