Enn viðvaranir og óvissustig vegna snjóflóðahættu Lovísa Arnardóttir skrifar 17. mars 2026 07:18 Það eru viðvaranir og óvissustig víða um land. Myndin er tekin í Ólafsfirði. Vísir/Atli Gular viðvaranir eru nú í gildi vegna veðurs á Faxaflóa, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi vestra. Þær eru annars vegar til 14 og 17. Þar er norðvestan stormur og hríð og á Faxaflóa er vindhraðinn allt að 25 metrum á sekúndu.
Á Vestfjörðum má búast við talsverðri eða mikilli snjókomu eða éljagangi með skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á norðanverðum Vestfjörðum og svipaða sögu er að segja af Ströndum og Norðurlandi vestra. Óvissustig vegna snjóflóðahættu Óvissustig er vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og á norðanverðum Vestfjörðum. Samkvæmt upplýsingasíðu Vegagerðarinnar er Flateyrarvegur lokaður vegna snjóflóðahættu og einnig vegurinn um Súðavíkurhlíð. Þá er Dynjandisheiðin einnig ófær. Á Norðurlandi eru vegirnir um Ólafsfjarðarmúla og Víkurskarð lokaðir og á þeim fyrrnefnda féll snjóflóð yfir veginn. Þá er Siglufjarðarvegur einnig ófær. Veðurspá fyrir landið gerir ráð fyrir norðan og norðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu, en 18 til 25 metrum á sekúndu norðvestanlands fram yfir hádegi. Þá er spáð snjókomu eða skafrenningi á norðanverðu landinu, dálítilli rigningu eða slyddu suðaustantil, en annars bjart með köflum. Hiti verður yfirleitt núll til fimm stig að deginum. Gular viðvaranir í dag. Veðurstofan Lægð á eftir lægð Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að suður af landinu sé víðáttumikil lægð sem þokist austur á bóginn. Lægðin valdi norðan- og norðaustanátt, hvassviðri eða stormi norðvestantil fram eftir degi, en annars hægari vindi. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Einnig er mjög hvasst á sunnanverðu Snæfellsnesi og því varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og er viðvörun vegna hvassviðris í gildi fyrir Faxaflóa. Hiti yfirleitt nálægt frostmarki. Dregur hægt úr vindi og ofankomu seinnipartinn og kólnar aðeins í veðri.Þá segir hann að á morgun, miðvikudag, sé útlit fyrir tiltölulega hæga vinda framan af degi, skýjað með köflum og stöku él norðaustanlands. Þá nálgast lægð úr suðvestri og þá gengur í vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestantil seinnipartinn, allhvasst eða hvasst með snjókomu eða slyddu þar seint um kvöldið. Á fimmtudag er svo spáð sunnanhvassviðri eða -stormi með talsverðri rigningu, hláku og hlýindum í bili, en suðvestanátt með éljagangi og kólnandi veðri á föstudag. Það bætast við fleiri lægðir í vikunni. Vísir/Vilhelm Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðvestan 8-15 m/s austast fram eftir degi, en annars mun hægari suðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum, en dálítil él norðaustanlands. Vaxandi sunnanátt vestast seinnipartinn og þykknar upp, 13-18 og slydda eða snjókoma þar seint um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn.Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 15-23 m/s og talsverð rigning, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 5 til 10 stig er kemur fram á daginn.Á föstudag: Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, hvassast við ströndina, en hægara og bjart með köflum austanlands og hiti nærri frostmarki.Á laugardag: Suðvestlæg átt og él, en yfirleitt bjartviðri norðan- og austanlands og hiti nærri frostmarki.Á sunnudag: Útlit fyrir hvassa austlæga átt með snjókomu eða slyddu, en rigningu syðra og hiti kringum frostmark.Á mánudag: Snýst líklega í norðanátt með snjókomu eða éljum, en rofar víða til sunnan heiða og kólnar í veðri.
Veður Færð á vegum Snjóflóð á Íslandi Tengdar fréttir Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Ólafsfjarðarvegi við Ólafsfjarðarmúla á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðs. 16. mars 2026 20:20 Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Vestfjörðum, Faxaflóa og Norðurlandi vestra. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er víða um land. 16. mars 2026 11:46 Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. 16. mars 2026 08:47 Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent „Það bara fannst ekki neitt“ Innlent Fleiri fréttir Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Sjá meira
Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Ólafsfjarðarvegi við Ólafsfjarðarmúla á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðs. 16. mars 2026 20:20
Veðurviðvaranir vegna sterkra hviða og mikillar snjókomu Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Vestfjörðum, Faxaflóa og Norðurlandi vestra. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er víða um land. 16. mars 2026 11:46
Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Gestur Hansson, snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði, segir veðrið á Siglufirði að ganga niður og það hafi verið bærilegt í nótt. 16. mars 2026 08:47