Veður

Krapi og hálku­blettir víða

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni af Vesturlandsvegi.
Mynd úr safni af Vesturlandsvegi. Vísir/Vilhelm

Vegagerðin varar við krapa og hálkublettum á fjölmörgum vegum úti á landi. Hiti verður við frostmark víða í dag. Það stefnir í úrkomumikla helgi um land allt. 

Þó að greiðfært sé um flestalla vegi á láglendi vekur Vegagerðin athygli á því að hálka eða hálkublettir séu á mörgum leiðum. Flughálka er á Mýrdalssandi og krapi á Sandskeiði, Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi. 

Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og stöku skúrir eða slydduél, en bjart með köflum á Norðurlandi. Á spákorti Veðurstofunnar má sjá að hitatölurnar eru flestar bláar í dag, sem sýnir að hiti er um og undir frostmarki. 

Norðlægari á morgun og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið á Suður- og Suðvesturlandi.

Hiti 1 til 7 stig að deginum, en víða næturfrost. Á sunnudag verður talsverð úrkoma um land allt. 

„Lægð yfir Bretlandi á laugardagskvöldið veldur norðaustlægri átt, 8-15 m/s, hjá okkur á sunnudag með rigningu eða snjókomu, fyrst austantil, en lengst af þurrt vestast á landinu. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):

Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og stöku él eða skúrir, en þurrt að kalla suðvestantil. Hiti 0 til 4 stig yfir daginn.

Á sunnudag:

Norðaustlæg átt 8-15. Rigning eða snjókoma norðan- og austanlands, en úrkomuminna vestast framan af degi. Hiti í kringum frostmark.

Á mánudag:

Norðlæg eða breytileg átt 5-10 og rigning eða slydda, en styttir upp sunnan heiða. Hiti 1 til 6 stig að deginum.

Á þriðjudag:

Norðlæg átt og rigning eða slydda, einkum norðan- og austanlands, en úrkomulítið suðvestanlands framan af degi. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:

Suðlæg eða breytileg átt með skúrum eða éljum. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.

Á fimmtudag:

Útlit fyrir ákveðna sunnanátt með rigningu. Hlýnar í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×