Menningin á heima í Kórnum Svava H. Friðgeirsdóttir skrifar 16. mars 2026 09:45 Efri byggðir Kópavogs hafa á undanförnum árum þróast hratt og orðið eitt öflugasta og fjölskylduvænsta hverfi bæjarins. Þar hefur myndast sterkt samfélag þar sem íþróttir, skólastarf og fjölbreytt þjónusta mynda grunn að góðum lífsgæðum íbúa. Nú er tímabært að taka næsta skref í þeirri uppbyggingu og efla menningarlíf svæðisins með nýjum menningarkjarna og bókasafni í Kórnum. Sterkur grunnur samfélagsins Kórinn er nú þegar hjarta íþróttalífs í efri byggðum Kópavogs þar sem öflugt starf íþróttafélaga fer fram allt árið um kring. Kóraskóli sem gegnir lykilhlutverki í menntun og félagslífi ungmenna í hverfinu. Þá er Hörðuvallaskóli einnig skammt undan og sækja nemendur þar íþróttakennslu í Kórinn. Á sama svæði hefur starfsemi Virkni og vellíðan einnig fest rætur og stuðlar að bættri heilsu og lífsgæðum margra eldri bæjarbúa. Þannig hefur svæðið þróast í mikilvægan samkomustað fyrir íbúa á öllum aldri. Tækifæri til að tengja saman menningu, menntun og íþróttir Þessi sterki grunnur skapar einstakt tækifæri til að byggja upp öflugan menningarkjarna á sama svæði. Með slíkri uppbyggingu er verið að tengja saman menningu, menntun og íþróttir á einn stað – eitthvað sem hefur reynst afar vel í nútíma skipulagi borga og bæja. Menning er ekki lúxus heldur hluti af grunninnviðum samfélagsins. Hún skapar samveru, styrkir sjálfsmynd hverfa og gefur börnum og ungmennum tækifæri til að þróa hæfileika sína í listum og skapandi starfi. Sem menntaður bókasafns- og upplýsingafræðingur þá fagna ég þessu mjög. Ég tel að einstaklingar og fjölskyldur muni eiga þarna gæðatíma saman í leik og starfi. Með þessu stuðlum við líka á betra aðgengi að fjölbreytilegu efni til að lesa auk annarrar þjónustu sem að Bókasafn Kópavogs hefur verið að bjóða uppá. Með menningarkjarna og bókasafni í Kórnum verður til nýr samkomustaður fyrir íbúa efri byggða þar sem hægt verður að halda sýningar, viðburði og fjölbreytt námskeið. Í takt við stefnu um fjölskylduvæn samfélög Uppbygging menningarkjarna í Kórnum fellur einnig vel að þeim áherslum sem Framsókn lagði fram í sveitarstjórnarkosningunum 2022. Þar var lögð sérstök áhersla á fjölskylduvæn samfélög, sterka innviði og aukin lífsgæði íbúa. Með því að þróa Kórinn áfram sem miðpunkt íþrótta, menntunar og menningar er verið að fylgja þeirri sýn eftir í verki. Slík uppbygging styrkir samfélagið í heild, eykur aðgengi íbúa að menningu og tómstundum og tryggir að þjónusta og innviðir vaxi í takt við ört stækkandi hverfi í efri byggðum Kópavogs. Framtíðarsýn fyrir efri byggðir Undir forystu Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi hefur verið lögð áhersla á að byggja upp sterka og fjölbreytta innviði í bænum. Uppbygging menningarkjarna í Kórnum er rökrétt framhald þeirrar stefnu og mikilvægt skref til að tryggja að efri byggðir fái þann sess í menningarlífi bæjarins sem þær eiga skilið. Framtíð efri byggða Kópavogs er björt. Þar er kraftmikið samfélag, öflugt íþróttastarf og sterkt skólasamfélag. Með nýjum menningarkjarna í Kórnum verður bætt við mikilvægan þátt sem mun styrkja samfélagið enn frekar og gera svæðið að enn betri stað til að búa, starfa og ala upp fjölskyldu. Menningin á einfaldlega heima í Kórnum! Höfundur er íbúi í efri byggðum Kópavogs og skipar 4. sæti á lista Framsóknar í Kópavogi til sveitarstjórnarkosninga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira