Golf

Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Cameron Young stóð uppi sem sigurvegari á Players-meistaramótinu 2026.
Cameron Young stóð uppi sem sigurvegari á Players-meistaramótinu 2026. getty/David Cannon

Eftir að hafa verið með þriggja högga forystu fyrir lokadag Players-meistaramótsins í golfi fór Ludvig Åberg illa að ráði sínu þegar allt var undir. Cameron Young nýtti sér mistök Svíans og tryggði sér sigurinn.

Åberg var í fínum málum framan af lokadeginum en á seinni níu seig á ógæfuhliðina hjá honum. Eftir að hafa leikið fyrri níu holurnar á pari lék Åberg seinni níu á samtals fjórum höggum yfir pari.

Young var í 3. sæti fyrir lokahringinn. Hann spilaði hann vel og var í harðri baráttu við Matt Fitzpatrick um sigurinn.

Þeir voru jafnir fyrir lokaholuna, á þrettán höggum undir pari. Fitzpatrick þurfti að setja niður pútt til að ná pari en brást bogalistin. Young urðu hins vegar ekki á nein mistök og tryggði sér sigurinn á Players.

Þetta var annar sigur Young á PGA-mótaröðinni en hann hafði áður unnið Wyndham Championship síðasta sumar. 

Young lék hringina fjóra á Players á samtals þrettán höggum undir pari, einu höggi á undan Fitzpatrick. Xander Schauffele varð þriðji á ellefu höggum undir pari.

Robert McIntyre endaði í 4. sæti á tíu höggum undir pari og Åberg, Sudarshan Yellamaraju og Jacob Brigdeman deildu 5. sætinu á níu höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×