Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. mars 2026 19:16 Björn Gunnlaugsson, skólastjóri Laugarnesskóla. vísir/lýður valberg Skólastjóri Laugarnesskóla segir það mikinn létti að geta loks tekið nýtt skólaþorp í gagnið en þau hafa beðið í þrjú ár eftir lausn á húsnæðisvanda skólans. Gripið verður til ráðstafanna til að bæta umferðaröryggi fyrir börnin við Reykjaveg.
Skólaþorpið er vel á veg komið í Laugardalnum steinsnar frá Laugardalsvelli á innan við ári eftir að áformin voru kynnt. Fimmti og sjötti bekkur Laugarnesskóla mun setjast á skólabekk strax að loknu páskafríi. Í spilaranum hér að neðan má sjá hvernig skólaþorpið lítur út eins og stendur: Aðstaðan er nauðsynleg til að leysa af skólahald í Laugarnesskóla á meðan framkvæmdir standa þar yfir meðal annars vegna myglu. Síðar mun þorpið hýsa starfsemi Laugalækjarskóla og Langholtsskóla þegar framkvæmdir hefjast þar. Reiknað er með að aðstaðan verði nýtt næstu fimmtán árin. „Þetta breytir mjög miklu fyrir okkur að fá þetta í notkun núna í vor. Við erum búin að bíða eftir því að komast úr Laugarnesskólahúsinu í þrjú ár. Það er ofboðsleg tilhlökkun að taka fyrsta áfangann í notkun. Þetta er dálítið öðruvísi en við höfum fengið að venjast í bráðabirgðahúsnæði fyrir skóla í Reykjavík.“ Um er að ræða tíu kennslustofur en í haust munu sex stofur bætast við. Um 400 nemendur munu sækja skólaþorpið. „Svo sérðu hérna móta fyrir þar sem verður dyraop þegar seinni áfanginn kemur í haust og þá munu koma tvær stofur til viðbótar hérna. Já það mun ná hérna lengur til suðurs en svæðið er og þessi göngustígur sem þið sjáið þarna verður til dæmis færður aðeins lengra, nær Suðurlandsbrautinni.“ Svo ásýndin hérna mun breytast töluvert? „Já þetta verður náttúrulega bara glæsilegt þegar allt er komið. Fallegt þorp og þetta verður bara kósý.“ Töluvert hefur verið fjallað um umferðaröryggi við Reykjaveg, skammt frá, eftir að ekið var í tvígang á börn sem þveruðu veginn í sama mánuði. Hafið þið áhyggjur af því eða verða gerðar einhverjar ráðstafanir í kringum það? „Það verða gerðar ráðstafanir og auðvitað höfum við áhyggjur. Reykjavegurinn er dálítið umferðarþung gata. Það verður gerð breyting á þverun til móts við skólaþorpið. Meðal annars ný gangbraut og síðan verður Hofteigi lokað til austurs þannig hann verður bara að botnlanga sem mun náttúrulega auka öryggi barnanna gífurlega mikið. Börnin eru að fara koma mikið til hérna úr hverfinu yfir Reykjaveginn, ýmist upp Reykjaveginn eða úr Hofteigi hérna beint á móti okkur.“ Björn horfir fram á bjartari tíma eftir að hafa þurft að horfa á eftir góðu starfsfólki vegna veikinda af völdum myglu. „Það er gleðiefni að þetta sé að koma loksins.“ Ákveðinn léttir að sjá þetta sigla í höfn? „Já, mikill léttir, að sjálfsögðu.“
Skóla- og menntamál Deilur um skólahald í Laugardal Reykjavík Grunnskólar Skipulag Borgarstjórn Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira