Unga fólkið ber byrðarnar Arnar Birkir Dansson skrifar 16. mars 2026 08:03 Er ásættanlegt fyrir framtíðina að borga reikninga fortíðarinnar? Að alast upp og vera ungur á Íslandi eru forréttindi. Lífsgæði okkar fengum við að hluta til í arf frá kynslóðunum sem á undan okkur komu. Hörkuduglegu fólki sem var í mun að skapa öflugt samfélag þar sem allir fá tækifæri. Við höfum aðgang að góðu menntakerfi og fjölbreyttum tækifærum til atvinnu og nýsköpunar. Þá hefur samhliða auknum lífsgæðum kynslóðanna á undan okkur, byggst upp öflugt lífeyriskerfi sem leitast við að tryggja öllum áhyggjulaust ævikvöld. Velferðarkerfið okkar er í fremstu röð og grípur einstaklinga sem höllustum fæti standa í okkar samfélagi. Fæðingarorlof hefur lengst - og heilt yfir er frábært að ala upp börn á Íslandi. Samfélagssáttmáli um velferð Velferð okkar er afsprengi samfélagssáttmála þeirra sem á undan okkur komu, fólks sem vann hörðum höndum að því að skapa sér og sínum gott samfélag. Sá sáttmáli byggði á því að hver kynslóð stæði undir eigin framförum – reikningurinn var ekki sendur áfram til framtíðarkynslóða. Núverandi ástand bitnar verst á ungu fólki Núverandi vendingar í efnahagslífinu; hátt raunvaxtastig og miklar hækkanir fasteignaverðs undanfarinn áratug, bitna verst á ungu fólki. Á meðan hefur hagur kynslóðarinnar á undan okkur stórbatnað, vaxtabyrðin fyrir þann hóp er léttari og fasteignaverð hefur hækkað verulega að raunvirði. Eignir hópsins hafa vaxið hraðar en skuldirnar að raunvirði og eigið fé því aukist verulega. Þrátt fyrir sífellt sterkari lífeyrisréttindi og hagfelldar ytri aðstæður undanfarin ár þykir ríkisstjórninni það forgangsmál að bæta enn frekar kjör eldri kynslóða með mjög almennum hætti. Þar til viðbótar stendur til að tengja saman lífeyrisbætur og örorkubætur við launavísitölu, mælikvarða sem nær allir hagfræðingar hafa varað við að sé óheppilegur. Nú þegar hefur ríkissjóður verið rekinn með töluverðum halla undanfarin ár og skuldsetning ríkisins eykst ár frá ári. En það kemur alltaf að skuldadögum og einhver þarf að greiða fyrir velferðina að lokum. Reikningurinn sendist á ungu kynslóðirnar. Vandamálin aukast og samfélagssáttmálinn rofnar Á sama tíma fjölgar eldra fólki utan vinnumarkaðar. Fyrir 50 árum voru um sex á vinnualdri fyrir hvern aldraðan einstakling, í dag eru þeir fjórir og eftir 50 ár gætu þeir orðið tveir. Þetta er ekki aðeins spurning um að senda reikninginn til ungu kynslóðarinnar, heldur þarf unga kynslóðin bæði að borga fyrir sig og fortíðina. Sjálfbærni kerfisins er undir og ekki er útséð hvernig við tryggjum einstaklingum framtíðarinnar sómasamleg lífskjör. Mín kynslóð þarf því líka að finna til ábyrgðar og gæta samfélagssáttmálans. Það hefur orðið rof á samfélagssáttmálanum. Ungt duglegt fólk þarf að skuldsetja sig verulega, á háum raunvöxtum meðan verðbólga hefur verið alltof há mörg ár í röð. Á sama tíma eru bótafjárhæðir öryrkja í einhverjum tilvikum orðnar talsvert hærri miðað við laun þeirra sem eru á vinnumarkaði. Þar að auki nær rífleg hækkun almenns frítekjumarks til fjölda ellilífeyrisþega, hópsins sem síst þarf á því að halda í núverandi ástandi. Það er lykilatriði að við hugsum vel um þá sem standa höllum fæti í samfélaginu. Bætur almannatrygginga eiga að tryggja fólki mannsæmandi líf og raunverulegt öryggi þegar á reynir. En til þess að slíkt kerfi standist til lengdar þarf það líka að vera sanngjarnt og sjálfbært. Það má aldrei verða þannig að það borgi sig frekar að þiggja bætur en að vinna fullan vinnudag. Við getum ekki endalaust hækkað frítekjumark ellilífeyristekna. Ef samfélagssáttmálinn á að halda þarf hann að vera réttlátur milli kynslóða, unga vinnandi fólkið má ekki eitt bera byrðarnar. Höfundur er ungur hagfræðingur sem starfar á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar