Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar 13. mars 2026 14:30 Niðurrif er hafið á Fannborgarreit í Kópavogi. Áformunum hefur verið mótmælt í mörg ár því ekki sé gert ráð fyrir því að hreyfihamlaðir íbúar á reitnum geti með góðu móti komist til og frá heimili meðan á framkvæmdunum stendur. Samkvæmt áætlunum standa þær yfir í 5 ár en líklegt er að þar sé byggt á bjartsýnum vonum. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs kannast ekki við að verið sé að skerða aðgengi almennings að svæðinu né að bílastæðum í viðtali við Vísi og bendir á að aðkomuáætlun hafi verið samþykkt. Hámarksfjarlægð að bílastæðum hreyfihamlaðra frá inngangi er 25 metrar í hindrunarlausri umferðarleið samkvæmt byggingarreglugerð. Fyrir hreyfihamlað fólk er mikilvægt að leiðir séu sem stystar og að engar hindranir séu á leiðinni. Kantar eða múrbrot sem flest okkar þurfa ekki að leiða hugann að eru öðrum tálmar. Ef litið er á aðkomuáætlunina eru nú bílastæði fyrir hreyfihamlaða á sjö stöðum á svæðinu, 15–98 metra frá inngöngum. Í fyrstu framkvæmdafösum breytist þetta lítið en í þriðja fasa versnar staðan mikið. Þá verða aðeins þrír staðir fyrir slík stæði eftir samkvæmt áætlun, þar af einn sem íbúar Fannborgar 1–9 geta alls ekki notað þar sem það er hinum megin við framkvæmdasvæðið. Önnur stæði á að útbúa í garði milli Digranesvegar 5 og 7 með aðgengi í gegnum lyftu. Sú lyfta er ekki til og þyrfti að setja upp á einkalóð, sem íbúar hafa ekki heimilað. Þá stendur íbúum í raun aðeins einn staður til boða til að leggja bílum sínum stóran hluta framkvæmdatímans í allt að 105 metra fjarlægð í stað sjö í dag. Í fasa 5 lengist vegalengdin enn frekar, allt að 120 metra fjarlægð, með aðgengi um lyftu í Fannborg 1. Enn hefur aðeins fengið niðurrifsleyfi en ljóst er á áætlunum að byggingarleyfi verði gefið út á næstunni. Samt hefur því ekki verið svarað með fullnægjandi hætti hvernig allur sá fjöldi fatlaðs og aldraðs fólks sem býr inni á miðju framkvæmdasvæðinu eigi að komast til og frá heimilum sínum næstu árin. Óhjákvæmlega verður nær ómögulegt að halda umferðarleiðum greiðum og setið verður um þau fáu stæði sem standa til boða, en auk þess munu íbúar þurfa að þola mikinn hávaða og loftmengun enda eru aðeins nokkrir metrar að framkvæmdasvæðinu frá Fannborg 1-9. Lítið hefur komið til tals það álag sem lagt er á nágranna í áætlunum um þéttingu byggðar. Oft virðist sem aðeins endirinn sé skoðaður í upphafi þegar breyta á skipulagi. Sá tími sem fer í sprengingar, þungaflutninga og þrengingar inni í miðri íbúðabyggð reiknist ekki með. Þegar aðkoma fólks að eigin heimilum er skert hljótum við að setja einhver mörk. Höfundur er verkefnastjóri hjá ÖBÍ réttindasamtökum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Málefni fatlaðs fólks Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar