Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2026 10:44 KC-135 eldsneytisvélarnar eru einhverjar þær mest notuðu í herflugvélaflota Bandaríkjanna en slys eru þrátt fyrir það sjaldgæf. AP/Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael.
Fjöldi Bandaríkjamanna sem hafa dáið í tengslum við stríðið gegn Íran er því kominn í að minnsta kosti ellefu. Í yfirlýsingu frá yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM) segir að björgunarstörf séu enn yfirstandandi og tildrög slyssins til rannsóknar. Þó sé ljóst að flugvélin hafi ekki verið skotin niður. Fréttin hefur verið uppfærð með tilliti til nýrrar yfirlýsingar frá CENTCOM um að búið að finna alla sex áhafnarmeðlimi og þeir séu látnir. Myndir af flugvélinni sem lent var í Ísrael sýna að hún hlaut skemmdir á stéli. תיעוד: אחד ממטוסי התדלוק האמריקניים, שהיה מעורב אתמול בתאונה בשמי עיראק, צולם בנתב"ג ללא חלק משמעותי ממיצב הכיוון בזנב המטוס. תיעוד המטוס הגיע אלינו הבוקר, ומלמד משהו על התאונה החריגה במהלך התקיפות באיראןהמטוס השני שהיה מעורב בתאונה התרסק בעיראק, גורל ששת אנשי הצוות לא ידוע pic.twitter.com/igBPfEOZjf— איתי בלומנטל 🇮🇱 Itay Blumental (@ItayBlumental) March 13, 2026 Flugher Bandaríkjanna á fjölda KC-135 eldsneytisvéla og þær eru mikið nýttar til að fylla á tanka herþota og annarra flugvéla í háloftunum yfir átakasvæðum og við að ferja flugvélar milli heimshluta. Þrátt fyrir að þetta séu einhverjar mest notuðu flugvélar Bandaríkjamanna og flestar orðnar tiltölulega gamlar eru slys sem þessi mjög sjaldgæf. Samkvæmt New York Times varð síðasta slysið með KC-135 árið 2013 en þá dóu þrír þegar flugvél hrapaði skömmu eftir flugtak í Afganistan. Þetta er fjórða herflugvélin sem Bandaríkjamenn missa síðan stríðið hófst. Hinar þrjár voru allar F-15 Strike Eagle herþotur sem skotnar voru niður af flugmanni frá Kúveit á F/A-18 Hornet, að virðist fyrir mistök.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Írak Hernaður Fréttir af flugi Tengdar fréttir Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. 12. mars 2026 23:29 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira
Bandarísk herflugvél fórst í Írak Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks. 12. mars 2026 23:29