Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2026 11:01 Grok er spjallmenni samfélagsmiðilsins X. Hann hefur birti ógrynni kynferðislegra mynda af konum og börnum að undanförnu. Evrópusambandið vill banna gervigreindarforrit sem framleiða slíkar myndir af raunverulegu fólki. Vísir/EPA Ólöglegt verður að markaðssetja gervigreindarforrit sem geta framleitt kynferðislegt myndefni af raunverulegu fólki í Evrópu ef tillaga sem Evrópusambandið er með til meðferðar nær fram að ganga. Aðgerðirnar koma í kjölfar þess að gervigreindartók samfélagsmiðilsins X dreifði slíkum myndum í vetur.
Bannið gæti tekið gildi þegar í sumar nái Evrópuþingið og aðildarríkin samkomulagi um það, að því er segir í frétt evrópska blaðsins Politico. Það næði þó ekki til fyrirtækja sem hefðu viðeigandi öryggiskerfi í gildi sem kæmu í veg fyrir misnotkun gervigreindarforrita. Falsaðar kynferðislegar gervigreindarmyndir af raunverulegu fólki komust í hámæli í vetur þegar Grok, gervigreindartók samfélagsmiðilsins X í eigu Elons Musk, framleiddi og birti kynferðislegar myndir af börnum og konum gegn vilja þeirra. Myndirnar birtust á X á reikningi Grok. Yfirvöld í fjölda ríkja auk Evrópusambandsins hafa rannsakað myndbirtingar Grok og X. Fjöldi Evrópuþingmanna kraðist þess í janúar að gervigreindartól sem hægt væri að nota til að framleiða kynferðislegar myndir af þessu tagi yrðu bönnuð. Sergey Lagodinsky, fulltrúi þýskra Græningja á Evrópuþinginu, segist að tillaga að banni nú snúist ekki eingöngu um Grok. „Þetta snýst um hversu mikil völd við viljum gefa gervigreindinni til þess að niðurlægja fólk,“ segir hann. Grok varð ekki aðeins við beiðnum X-notenda um að afklæða konur og börn á raunverulegum myndum heldur setti hann konur í sumum tilfellum í baðföt skreytt hakakrossum nasista. Þá hikaði spjallmennið ekki við að afklæða lík kvenna á myndum, þar á meðal konu sem útsendari bandarískra innflytjendayfirvalda skaut til bana í Minneapolis í vetur.
Evrópusambandið Tækni Klám Gervigreind Samfélagsmiðlar X (Twitter) Tengdar fréttir Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. 17. febrúar 2026 09:31 Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins. 3. febrúar 2026 12:04 Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48 Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira
Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. 17. febrúar 2026 09:31
Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins. 3. febrúar 2026 12:04
Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48